Svandís kallar eftir upplýsingum frá Matvælastofnun

Mynd sem gengur á samfélagsmiðlum og sýnir þann hrylling sem getur átt sér stað ef ekki er gripið nógu fljótt til viðeigandi ráðstafana þegar aðstæður krefjast.
Mynd sem gengur á samfélagsmiðlum og sýnir þann hrylling sem getur átt sér stað ef ekki er gripið nógu fljótt til viðeigandi ráðstafana þegar aðstæður krefjast.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur kallað eftir upplýsingum frá Matvælastofnun um framkvæmd eftirlits og verkferla vegna velferðar dýra þegar grunur leikur á að umráðamenn séu ekki að uppfylla ákvæði laga, hvort sem um er að ræða almennt eftirlit eða samkvæmt ábendingum sem berast stofnuninni.

Á  heimasíðu Stjórnarráðsins segir að í erindi sínu til Matvælastofnunar óski ráðherra einnig eftir upplýsingum um hvort stofnunin telji skort á heimildum í lögum til að tryggja velferð dýra og grípa til viðeigandi ráðstafana þegar aðstæður krefjast.

Jafnframt er farið fram á að stofnunin upplýsi matvælaráðherra um stefnu sína hvað varðar upplýsingamiðlun til almennings meðan þær aðgerðir sem snúa að velferð dýra standa yfir og eftir að þeim lýkur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir