Svæðisbundnar samkomutakmarkanir vegna hópsmits í Skagafirði

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, hefur sett reglugerð sem kveður á um svæðisbundnar takmarkanir á samkomum í sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi. Á vef ráðuneytisins kemur fram að reglugerðin feli í sér að þær afléttingar á landsvísu sem tóku gildi í dag eigi ekki við á því svæði. Þar gilda áfram sömu takmarkanir og verið hafa undanfarnar vikur, tímabundið til og með 16. maí næstkomandi.

Ákvörðunin var tekin í samráði við aðgerðastjórn Skagafjarðar og umdæmislækni Norðurlands vegna hópsmits á svæðinu og er markmiðið að stöðva útbreiðslu smita með tafarlausum og markvissum aðgerðum. Reglugerð ráðherra er staðfesting á ákvörðun sóttvarnalæknis sama efnis sem hann tók til bráðabirgða í gær 9. maí og gerði ráðherra viðvart í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga.

Í meginatriðum eru samkomutakmarkanir sem gilda á umræddu svæði þessar:
Fjöldatakmörk: miðast við 20 manns.
Verslanir: hámarksfjöldi viðskiptavina 100 að uppfylltum öðrum skilyrðum
Viðburðir: hámarksfjöldi á sitjandi viðburðum er 100 í stað 150.
Veitingastaðir með vínveitingaleyfi: Opnunartími til kl. 21.00 og gestir yfirgefi staðinn fyrir kl. 22.00
Sund- og baðstaðir, heilsu- og líkamsræktarstöðvar, skíðasvæði og tjaldsvæði: Gestir að hámarki helmingur af annars leyfilegum hámarksfjölda.
Íþróttaæfingar og keppnir, sviðslistir og sambærilegir viðburðir: Hámarksfjöldi þátttakenda 50 manns.

Annars staðar á landinu tóku nýjar reglur gildi í dag sem gefa meiri tilslakanir á sóttvörnum og eru eftirfarandi:
Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 20 í 50 manns. Börn fædd 2015 og síðar verði áfram undanþegin.
Nándarregla verði áfram almennt tveir metrar.
Grímuskylda og leiðbeiningar um grímunotkun óbreyttar. Börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu.
Sund- og baðstaðir, skíðasvæði, tjaldsvæði og söfn opin fyrir 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Börn fædd 2015 og síðar teljist ekki með.
Líkamsræktarstöðvar opnar fyrir 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, en ekki fleiri en 50 manns í hverju rými. Önnur skilyrði óbreytt.

Íþróttir: Hámarksfjöldi þátttakenda í íþróttum 75 í stað 50 í hverju hólfi.
Sviðslistir: Hámarksfjöldi þátttakenda 75 í stað 50 í hverju hólfi/á sviði.
Sitjandi viðburðir: Hámarksfjöldi áhorfenda eða gesta á sitjandi viðburðum, s.s. íþróttakappleikjum, sviðslistum, athöfnum trúar- og lífskoðunarfélaga, verður 150 manns í hverju sóttvarnahólfi í stað 100. Önnur skilyrði óbreytt.
Verslanir: Hámarksfjöldi viðskiptavina í verslunum 200 manns í stað 100.
Veitingastaðir: Opnunartími lengist um klukkustund, frá kl. 21 til kl. 22. Gestir þurfa að hafa yfirgefið staðinn fyrir kl. 23.00.

Skólastarf
Hámarksfjöldi fullorðinna 50 í hverju rými.
Hámarksfjöldi barna/nemenda verður 100 í hverju rými.
Foreldrar og aðstandendur mega koma inn í skólanna.
Blöndun milli hópa barna innan skóla heimil í sundi og íþróttum í grunnskólum.
Viðburðir fyrir utanaðkomandi heimilaðir með þeim takmörkunum sem almennt gilda.
Blöndun nemenda milli hólfa einnig leyfð í háskólum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir