Stend með Strandveiðum!

Lilja Rafney Magnúsdóttir. Mynd: Vinstri Grænir.
Lilja Rafney Magnúsdóttir. Mynd: Vinstri Grænir.

Efling sjávarbyggða landsins er mér afar hugleikin. Hef ég sem formaður atvinnuveganefndar unnið að eflingu Strandveiðikerfisins með þverpólitískri samstöðu innan atvinnuveganefndar á þessu kjörtímabili. Það hafa verið gerðar veigamiklar breytingar á strandveiðum þar sem komið hefur verið á dagakerfi með auknum fyrirsjáanleika með öryggi sjómanna að leiðarljósi, auknum aflaheimildum og jafnræði á milli landshluta. Mikil ánægja hefur ríkt meðal sjómanna og sjávarbyggðanna með þessar breytingar hver útgerðaraðil fær tólf daga í mánuði frá maí til ágúst. Það sem út af stendur til að tryggja kerfið varanlega er að hafa meiri sveigjanleika innan félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins svo að aflaheimildir verði tryggðar fyrir strandveiðisjómenn allt strandveiðitímabilið í 48 daga. Í skýrslu Byggðastofnunar sem atvinnuveganefnd lét gera kemur fram að öflugt strandveiðikerfi væri ein sterkasta byggðaaðgerðin fyrir minni sjávarbyggðir!

Aflaheimildir dugðu ekki fyrir allt strandveiðitímbilið 2020 og blasað hefur við að þær myndu ekki duga í ár. Hef ég reynt með öllum ráðum að fá sjávarútvegsráðherra til að auka sveigjanleika innan kerfisins og færa t.d. af almenna byggðakvótanum í strandveiðar þegar á þyrfti að halda. Það reyndist ekki hægt sumarið 2020 nema með lagabreytingu sem reynt hefur verið að ná fram með ráðherra og aftur nú í vor með engum árangri. Það var því á lokametrum þingsins sem ég ásamt fleirum lögðum fram frumvarp sem með bráðabrigðaákvæði heimilaði að taka af byggðakvóta næsta árs ef aflaheimildir dyggðu ekki til strandveiðanna í ár. Frumvarpið kom seint fram þar sem reynt var á stuðning ráðherra fram á það síðasta. Þetta útspil mitt var því þrautarlending og þar sem allt getur gerst í þinglokasamningum ef vilji er til þá vonaðist ég vissulega til þess að þverpólitísk samstaða gæti náðst um þetta þjóðþrifamál að tryggja atvinnu sjómanna og fiskvinnslufólks út sumarið ef á þyrfti að halda með lagastoð fyrir heimild ráðherra til að færa aflaheimildir á milli ára eins og heimilt er í stóra hluta fiskveiðikerfisins og einnig í almenna byggðakvótanum.

Uppi varð fótur og fit við þinglok , þinglokasamningar í uppnámi og engin samstaða náðist um málið því miður, sem sýnir í raun takmarkaðan áhuga á þessum málaflokki á Alþingi en mikil samstaða og vilji hefur þó ríkt innan atvinnuveganefndar um að efla strandveiðar en það dugði ekki til í þetta sinn enda tíminn naumur. Bent hefur verið á frumvarp ráðherra um breytingar á almenna byggðakvótanum en þær gengu m.a. út á það að festa samninga um byggðakvóta til 6 ára og skerða heimildir til strandveiða og veikja þar með kerfið, það hefðum við í VG aldrei getað samþykkt. Það frumvarp var saltað að vilja ráðherra þar sem vilji hans til að kvótasetja grásleppu náði ekki fram að ganga m.a. vegna andstöðu okkar í VG.

Ég mun halda áfram að berjast fyrir málum sem snúa að öflugri landsbyggðum hvar sem þar er borið niður til sjávar eða sveita og öflugar strandveiðar eru hlekkur í þeirri keðju.

Ég legg því traust mitt á að fá stuðning til áframhaldandi þingsetu í haust nú í 2 sæti ,baráttusæti VG í komandi kosningum. Mitt mottó er“ við gefumst ekki upp þó móti blási“.

Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður VG í NV kjördæmi formaður atvinnuveganefndar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir