Stefnt á að endurbygging Ásgarðs hefjist á næsta ári
Ástand Ásgarðsbryggju á Skagaströnd er ekki eins og best verður á kosið og segir á heimasíðu sveitarfélagsins að nauðsynlegt sé að ráðast í endurbætur á hafnarmannvirkinu til þess að það geti áfram þjónað sínum tilgangi til framtíðar. Bátar af mismunandi stærðum hafa legið við mannvirkið í gegnum árin sem hefur þjónað mikilvægu hlutverki fyrir hafnarstarfsemi á Skagaströnd.
Samkvæmt frétt sveitarfélagsins er ærið verkefni fyrir höndum en skoðaðir hafa verið nokkrir möguleikar á endurnýjun bryggjunnar og eru mörg ár síðan sú vinna hófst og þar með baráttan fyrir umbótum. Mat Hafnarsviðs Vegagerðarinnar er að endurbyggingu Ásgarðs verði best borgið með því að setja stálþil utan um núverandi bryggju og að Miðgarði, þó að fleiri útfærslur hafi verið teknar til athugunar.
„Þó það sé langhlaup að knýja fram framkvæmdir, og hvað þá á þessum skala, er gaman að segja frá því að verkefnið hefur hlotið brautargengi og er á fimm ára aðgerðaráætlun samgönguáætlunar 2020-2024. Það er stór áfangi og jákvæður fyrir uppbyggingu á Skagaströnd. Gildandi samgönguáætlun felur í sér mikilvæga framtíðarsýn og víðtæk áform m.a. um nauðsynlegt viðhald á höfnum sem ber að fagna og við Skagstrendingar njótum þar góðs af,“ segir Alexandra Jóhannesdóttir, sveitarstjóri í færslunni.
Heildarkostnaður vegna framkvæmda er áætlaður 245 milljónir og er stefnt að því að frumhönnun og efniskaupum verði lokið 2021 en framkvæmdir hefjist 2022 og ljúki 2023.
„Það verður gaman að fylgjast með framgangi verkefnisins sem mun bæta ásýnd og aðstöðu á hafnarsvæði til muna,“ segir Alexandra.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.