Slakað á reglum um sóttkví
Einstaklingum sem eru útsettir fyrir COVID-19 smiti utan heimilis eða dvalarstaðar síns er ekki lengur skylt að fara í sóttkví en þurfa þess í stað að viðhafa smitgát samkvæmt þeim breytingarnar sem tóku gildi á miðnætti. Sóttkví verður áfram beitt gagnvart þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti innan heimilis eða dvalarstaðar en þríbólusettir sem útsettir eru á heimili geta verið í smitgát sem lýkur með sýnatöku. Börn á leik- og grunnskólaaldri verða enn fremur undanþegin smitgát.
Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að breytingarnar á reglum um sóttkví hafi verið gerðar í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis en í minnisblaði hans til heilbrigðisráðherra kemur fram að ómíkron-afbrigði kórónaveirunnar sé uppistaðan í þeim mikla fjölda smita sem nú greinast eða í rúmlega 90% tilvika, en delta-afbrigðið í tæplega 10%.
„Þannig sé faraldurinn nú um margt frábrugðinn því sem verið hefur en ómíkron-afbrigðið er mun meira smitandi en delta-afbrigðið, veldur sjaldnar alvarlegum veikindum og sleppur frekar undan vernd bóluefna og fyrri smita,“ segir í fréttinni en jafnframt kemur fram að í minnisblaði sóttvarnalæknis hafi núverandi reglur um sóttkví og einangrun valdið miklum fjarvistum í skólum og á vinnumarkaði með tilheyrandi truflunum. „Mörg börn hafi endurtekið þurft að vera í sóttkví og hafi sérfræðingar í velferð barna bent á að slíkt geti haft neikvæðar afleiðingar. Því sé lagt til að börn á leik- og grunnskólaaldri þurfi ekki að fara í smitgát eða sóttkví nema þau hafi dvalið eða dvel með einstakling í einangrun.“
Á mánudaginn voru rúmlega ellefu þúsund manns í einangrun, þar af rúmlega fjögur þúsund börn og tæplega 14 þúsund manns í sóttkví og þar af um 6.900 börn en stór hluti þeirra fullorðinna sem skráður var í sóttkví þá var þríbólusettur og hefur því getað mætt til vinnu.
Sjá nánar HÉR
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.