Slagarasveitin sendir frá sér Koss Bylgju

Slagarasveitin í útigallanum. Frá vinstri: Stefán Ólafs, Skúli Þórðar, Geir Karls, Ragnar Karl og Valdimar. MYND AÐSEND
Slagarasveitin í útigallanum. Frá vinstri: Stefán Ólafs, Skúli Þórðar, Geir Karls, Ragnar Karl og Valdimar. MYND AÐSEND

Húnvetningarnir í Slagarasveitinni hafa í ár unnið að upptöku nýs efnis sem líta mun dagsins ljós á næstu vikum og mánuðum. Fyrsta lagið sem Slagarasveitin sendir frá sér að þessu sinni, en sveitin var endurvakin nýlega eftir að hafa legið í dvala í ein 15 ár, er Koss Bylgju sem má nú finna á Spotify.

Í tilkynningu sem Feyki barst frá Slagarasveitinni segir að Koss Bylgju sé vel yfirbyggt klassískt rokklag með vaxandi þunga sem hæfir textanum vel. „Textinn gæti verið minni úr íslenskri þjóðsögu, saga af draug sem af dauðans þrá vill draga heitkonu sína í hafið og á leiðarenda. Drottningar hafdjúpanna (kannski sjósundkonur nútímans) annast móttökurnar hver á sinn hátt, Bylgja, Alda, Bára, Unnur, Hrönn og Rán. Droparnir þungu vísa leiðina allt til enda.....

Textinn er eftir Skúla Þórðarson og lagið eftir Ragnar Karl Ingason. Ómar Guðjónsson lagði Slagarasveitinni lið með gítarleik sínum en túlkun hans fleytir hlustendum út yfir óravíddir hafs og lands. Halldór Ágúst Björnsson stjórnaði upptökum, útsetti lagið, annaðist forritun og hljómborðsleik.“

Slagarasveitina skipa:
Geir Karlsson : bassi
Ragnar Karl Ingason : gítar og raddir
Skúli Þórðarson : trommur og raddir
Stefán Ólafsson : gítar og raddir
Valdimar Gunnlaugsson : söngur

Á Spotify má sjá að Slagarasveitin á þrjú önnur lög inni á efnisveitunni; Sæludal, Það ert þú og Gráa fiðringinn. Hér er slóð á Koss Bylgju >

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir