Skúnaskrall - barnamenningarhátíð á Norðurlandi vestra
Skúnaskrall – barnamenningarhátíð verður haldin í fyrsta sinn víðs vegar á Norðurlandi vestra frá 14. til 24. október 2021. Ýmis námskeið, vinnustofur og listviðburðir munu prýða dagskrá hátíðarinnar. Á heimasíðu Skúnaskralls segir að áhersla sé lögð á fjölbreytni í dagskrá og gott aðgengi. Meginreglan er að aðgangur sé ókeypis og veiti því öllum börnum og ungmennum á Norðurlandi vestra tækifæri til að upplifa og vinna að fjölbreytileika listsköpunar.
Á síðunni segir: „Skúnaskrall er þátttökuhátíð og ýtir því einnig undir og hvetur mannauð Norðurlands vestra til að stýra námskeiðum, viðburðum og smiðjum fyrir börn og ungmenni. Styrkir og stuðningur verður veittur til þessa.
Verkefnið er liður í sóknaráætlun Norðurlands vestra og er stjórn hátíðarinnar ráðin af samtökum sveitarfélaganna sem einnig veita fjármagn í verkefnið og halda utan um bókhald. Að öðru leyti er verkefnið fjármagnað af styrkveitingum.
Barnamenningarhátíð Norðurlands vestra er spennandi verkefni sem vonandi fær að stækka og dafna í framtíðinni og verða fastur liður í menningarstarfi barna á svæðinu.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.