Skapandi tækifæri fyrir öll börn á Íslandi
Öllum grunnskólanemum landsins gefst nú tækifæri á að taka þátt í áhugaverðum og skapandi menningarverkefnum í gegnum verkefnið List fyrir alla, sem skipulagt er af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Markmið verkefnisins er að velja og miðla listviðburðum af margbreytilegu tagi til barna og ungmenna um land allt.
„Við viljum jafna aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag og einnig setja þeirra eigin sköpun og menningu í öndvegi,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Á vef menntaálaráðuneytisins kemur fram að nú sé sérstök áhersla á miðlun efnis sem stuðli að sköpun og skilningi nemendanna sjálfra á ólíkum listgreinum. Því er meðal annars kynnt til sögunnar glænýtt efni fyrir unga listamenn sem áhuga hafa á kvikmyndagerð.
„Kvikmyndagerð fyrir alla leggur áherslu á virkrar þátttöku unglinga í elstu bekkjum grunnskóla og hefur námsefni verið gert aðgengilegt þar sem nemendur eru leiddir í gegnum það ferli að búa til stuttmynd. Þá gefst þeim tækifæri til að taka þátt í í stuttmyndasamkeppni sem ber yfirskriftina Kvikindahátíð,“ segir í færslunni en upplýsingar um menningarverkefnin má nálgast á vefnum listfyriralla.is.
„Þessu frábæra efni fylgja stuttir þættir sem gefa innsýn í líf og starf sex íslenskra listamanna á sviði kvikmyndagerðar. Það er okkur hjartans mál að efla miðlalæsi og kvikmyndamenntun hér á landi og ég hef trú á því að þessi fræðsla og tækifæri muni tendra áhuga hjá mörgum. Unga fólkið á Íslandi er skapandi og sköpun er lykilþáttur í menntun,“ segir ráðherra.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.