Skagaströnd tryggt vatn fyrir baðlaugar við Hólanes
Sveitarfélagið Skagaströnd og Rarik undirrituðu á dögunum samning um afhendingu á vatni vegna uppbyggingu á baðlónum við Hólanes á Skagaströnd. Böðin verða staðsett við sjávarmálið á Hólanesi sem er miðsvæðis á Skagaströnd og skartar tilkomumiklu útsýni yfir Húnaflóann og Strandafjöllin.
Unnið hefur verið að uppbyggingu glæsilegra baðlóna við Hólanes á Skagaströnd, á milli gamla barnaskólans og Nes listamiðstöðvar og er gert ráð fyrir því að framkvæmdir geti hafist á árinu.
Mynd af mögulegri uppbyggingu
sjóbaða á Skagaströnd.
Mynd. Skagastrond.is.
Á vef Skagastrandar segir að sveitarstjórn hafi tekið samninginn við RARIK fyrir á síðasta fundi sínum þann 15. desember sl. Í bókun sveitarstjórnar segir m.a.:
„...Í samræmi við samninginn sem gerður var milli Skagastrandar og RARIK í desember 2011 þá er í nýju samkomulagi milli sveitarfélagsins og RARIK áréttað að sveitarfélaginu verði tryggt vatn fyrir baðlaugar, en vegna ástands vatnsöflunar fyrir veituna þá er mælt um takmarkanir á afhendingu á heitu vatni til baðlauga á meðan verið er að leita að meira vatni. Sveitarstjórn fagnar því að RARIK tryggi afhendingaröryggi á vatni til sjóbaða og telur ljóst að miðað við gefnar forsendur muni umræddar takmarkanir ekki hafa áhrif á fyrirhugaða uppbyggingu og rekstur. Samningurinn var samþykktur samhljóða af sveitarstjórn og var sveitarstjóra falið að undirrita samninginn.“
Jafnframt kemur fram á Skagastrond.is að sveitarfélagið fagni áfanganum og er fullt eftirvæntingar að halda áfram að vinna að þessari mikilvægu uppbyggingu sem glæsilegu baðlónin við Hólanes verða fyrir Norðurland vestra.
Sjá nánar á Skagaströnd.is
Tengdar fréttir:
Breyting á deiliskipulagi við Hólanes
Skagstrendingar hyggjast reisa glæsileg baðlón við Hólanes
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.