Segja Kjalveg illa farinn á stórum köflum
Húnahornið segir frá því að sveitarstjórn Húnavatnshrepps hafi miklar áhyggjur af ástandi Kjalvegar og skorar á Vegagerðina að ráðast í undirbúningsaðgerðir til að bæta ástand vegarins. Í bókun sveitarstjórnar frá fundi hennar í vikunni segir að vegurinn sé á stórum köflum niðurgrafinn sem geri það að verkum að vatn renni eftir veginum sem hafi þær afleiðingar að allt efni sé farið úr honum.
Sveitarstjórn telur að ef Kjalvegur verði byggður upp komi það í veg fyrir utanvegaakstur og hættu á slysum. Leggur hún áherslu á að Kjalvegur verði settur á 1. tímabil samgönguáætlunar. Sveitarstjórnin hvetur samgöngunefnd Alþingis og Vegagerðina til að hefja undirbúningsvinnu við endurbætur á Kjalvegi sem meðal annars felst í mati á umhverfisáhrifum samanber niðurstöðu Skipulagsstofnunar frá 19. desember í fyrra.
Heimild: Húni.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.