Samfylking heldur opna fundi um húsnæði og kjaramál

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar. AÐSEND MYND
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar. AÐSEND MYND

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar og Jóhann Páll Jóhannsson alþingismaður boða til opinna funda á Hvammstanga og Sauðárkróki miðvikudaginn 4. september. „Við hlökkum til að eiga samtöl við heimamenn um húsnæðismálin, kjörin og málefni fjölskyldna,“ segir Kristrún en fundirnir eru liður í umfangsmiklu málefnastarfi flokksins um allt land.

Fundurinn á Hvammstanga fer fram í Sjávarborg kl. 12:00 miðvikudaginn 4. september. Svo verður fjölskyldugrill í Golfskálanum á Sauðárkróki kl. 17:00 sama dag þar sem boðið verður upp á skemmtun fyrir krakkana og líflegan leynigest.

Málefnastarfið opnað upp á gátt

„Það hefur verið kappsmál hjá okkur að opna málefnastarf Samfylkingarinnar upp á gátt þannig að fólk um allt land geti tekið þátt í að leggja grunn að áherslum og forgangsröðun flokksins í veigamestu málaflokkum. Það er öllum velkomið að taka þátt í samtalinu og koma á framfæri sínum sjónarmiðum – við komum til að hlusta,“ segir Kristrún. „Heilbrigðismálin voru í forgrunni í fyrra, svo atvinna og samgöngur síðasta vetur og nú erum við að taka hringferð um húsnæðis- og kjaramálin.“

Jóhann Páll er formaður stýrihópsins sem fer fyrir vinnunni. „Við erum meðal annars að kortleggja hvernig er hægt að byggja meira, hraðar og betur til að koma jafnvægi á íbúðamarkaðinn, hvernig er skynsamlegt að styðja betur við barnafólk og tryggja að eldra fólk njóti ávinnings af því að hafa greitt í lífeyrissjóði um langa ævi.“

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir