Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur skipuð

Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur skipað. Mynd: Stjonarradid.id
Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur skipað. Mynd: Stjonarradid.id

Ríkisráð kom saman til tveggja funda á Bessastöðum í gær en á fyrri fundinum veitti Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fyrsta ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur lausn frá störfum. Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur var svo skipað á seinni fundinum þar sem forseti undirritaði einnig úrskurð um skiptingu starfa ráðherra sem er með eftirfarandi hætti:

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra. 
Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Jón Gunnarsson, innanríkisráðherra.
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra.

Á heimasíðu Stjórnarráðsins segir að í tengslum við myndun ríkisstjórnarinnar verði gerðar umfangsmiklar breytingar á skipulagi þess auk þess sem ráðherrum fjölgar um einn og verða tólf. Ráðuneytum verður fjölgað úr tíu í tólf og verkefni færð milli ráðuneyta.

Ný ráðuneyti

Ný ráðuneyti munu taka til starfa um eða eftir áramót. Skipan ráðuneyta verður eftirfarandi:
Forsætisráðuneyti: Helstu breytingar eru þær að mannréttindamál færast til ráðuneytisins frá dómsmálaráðuneytinu.
Fjármála- og efnahagsráðuneyti: Verkefni ráðuneytisins eru óbreytt. 
Innviðaráðuneyti: Verkefni ráðuneytisins verða í aðalatriðum þau sömu og verkefni samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Þá færast húsnæðis- og mannvirkjamál til ráðuneytisins frá félagsmálaráðuneytinu og skipulagsmál frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. 
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti: Verkefni nýs ráðuneytis byggja að mestu á grunni þeirra verkefna sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sinnti í síðustu ríkisstjórn en skógrækt og landgræðsla færast til ráðuneytisins frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti: Verkefni ráðuneytisins verða að mestu þau sömu og hafa verið hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu en orkumál og auðlindanýting færast til ráðuneytisins frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. 
Utanríkisráðuneyti: Verkefni ráðuneytisins verða í aðalatriðum þau sömu. 
Ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðuneyti: Verkefni ráðuneytisins byggja á grunni þeirra verkefna sem ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra sinntu í síðustu ríkisstjórn, þ.á m. menningarmál sem færast frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. 
Mennta- og barnamálaráðuneyti: Helstu verkefni ráðuneytisins verða málefni skóla, íþrótta- og æskulýðsmála og málefni barna.

Félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneyti: Verkefni ráðuneytisins eru að mestu þau sömu og verið hafa hjá félagsmálaráðuneytinu en þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd færist yfir í ráðuneytið frá dómsmálaráðuneytinu. 
Vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti: Helstu verkefni nýs ráðuneytis verða málefni vísinda- og rannsókna, þ. á m. háskóla, iðnaðar og nýsköpunar og fjarskiptamál. Vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra verður með aðsetur í mennta- og menningarmálaráðuneyti þar til hið nýja ráðuneyti tekur til starfa. 
Innanríkisráðuneyti: Verkefni ráðuneytisins verða í aðalatriðum þau sömu og dómsmálaráðuneytið hefur.
Heilbrigðisráðuneyti: Verkefni ráðuneytisins eru óbreytt.

HÉR má sjá sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.

Lyklaskipti

Lyklaskipti verða hjá ráðherrum í dag og munu Svandís Svavarsdóttir og Willum Þór Þórsson ríða á vaðið í heilbrigðisráðuneytinu Kl. 9.00.

Kl. 9.15: Félagsmálaráðuneyti: Ásmundur Einar Daðason -> Guðmundur Ingi Guðbrandsson
Kl. 9.40: Utanríkisráðuneyti: Guðlaugur Þór Þórðarson -> Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Kl. 10.10: Mennta- og menningarmálaráðuneyti: Lilja Dögg Alfreðsdóttir -> Ásmundur Einar Daðason og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Kl. 10.30: Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti: Kristján Þór Júlíusson -> Svandís Svavarsdóttir

Kl. 10.40: Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir -> Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Kl. 11.00: Dómsmálaráðuneyti: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir -> Jón Gunnarsson
Kl. 11.20: Umhverfis- og auðlindaráðuneyti: Guðmundur Ingi Guðbrandsson -> Guðlaugur Þór Þórðarson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir