Riða greindist í skimunarsýni frá Sporði í Húnaþingi vestra

Sauðfjárbúskapur var aflagður á Sporði í haust, aðeins er því um þrif og sótthreinsun að ræða. Mynd tengist fréttinni ekki beint.
Sauðfjárbúskapur var aflagður á Sporði í haust, aðeins er því um þrif og sótthreinsun að ræða. Mynd tengist fréttinni ekki beint.

Matvælastofnun greinir frá því á heimasíðu sinni að fyrir skömmu hafi borist tilkynning frá Tilraunastöð HÍ að Keldum um að sýni hafi reynst jákvætt m.t.t. riðu frá bænum Sporði í Línakradal i Húnaþingi vestra. Sauðfjárbúskapur var aflagður á bænum í haust og því aðeins um þrif og sótthreinsun að ræða hvað aðgerðir viðkemur vegna riðuvarna.

Á heimasíðu Matvælastofnunar kemur fram að á hverju hausti væri fjöldi sýna tekinn úr fé sem sent er til slátrunar og þau rannsökuð með tilliti til riðu en jákvæð niðurstaða úr rannsókn á einu slíku sýni frá í haust barst stofnuninni nýlega. Um var að ræða sýni úr kind frá bænum Sporði í Línakradal í Húnaþingi vestra en jörðin er í Húna- og Skagahólfi

„Þegar Matvælastofnun hafði samband við bóndann kom í ljós að hann hætti sauðfjárbúskap í haust og því ekkert fé lengur á bænum. Í þessu tilviki er því ekki um niðurskurð á fé að ræða en Matvælastofnun mun framkvæma faraldsfræðilega rannsókn og hefur lagt til við ráðherra að hreinsun útihúsa og umhverfis verði fyrirskipuð,“ segir á mast.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir