Ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar í heimsókn í Austur-Húnavatnssýslu
Framkvæmdaráð sameiningarnefndar sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu bauð Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, til fundar heim í hérað á mánudag. Til umræðu voru meðal annars áskoranir og tækifæri svæðisins og svo heimsótti ráðherra fyrirtæki og frumkvöðla í sýslunni, t.d. gagnaverið, Vörusmiðju BioPol og Textílmiðstöð Íslands.
Á Húni.is kemur fram að Þórdís hafi einnig fengið kynningu á framleiðslunni á Hólabaki en þar eru framleidd sængurföt, púðar og fleira undur merkjunum Tundra og Lagður. Þá kom hún við á Þrístöpum þar sem verið er að útbúa aðstöðu til að taka á móti ferðamönnum og fékk kynningu um svæðið og sögu þess.
Þórdís segir frá deginum í færslu á Facebook og endar hana á því að segja: „Þetta er auðvitað bara brot af þeim verkefnum sem eru í gangi og ýmislegt spennandi á teikniborðinu að auki. Alltaf ómetanlegt að sjá kraft, hugkvæmni og metnað í verki á ferðum um landið.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.