Pössum upp á dýrin okkar um jólin

Mynd tekin af kynjakettir.is
Mynd tekin af kynjakettir.is

Nú eru innan við tvær vikur í jólin og þeim fylgir að á nánast hverju einasta heimili er að finna eins og eina jólastjörnu, lilju, túlípana og/eða greni hvort sem það er grenitré eða grein sem búið er að skreyta. Þessar vinsælu jólaplöntutegundir eru hins vegar ekki svo góðar fyrir heimiliskettina, ef svo skemmtilega vill til að þú eigir einn eða tvo eða kannski þrjá slíka. Þessar plöntur hafa, því miður, mis mikil eituráhrif á ketti ef þeir innbyrgða þær og geta jafnvel leitt til dauða. 

Eituráhrifin af jólastjörnunni og greninu eru þó frekar væg og lýsa sér með ógleði og uppköstum og geta ekki valdið þeim dauða. Hins vegar eru liljur og túlípanar mjög eitraðir og geta leytt til dauða en það fer hins vegar eftir magninu sem kötturinn innbyrðir. Það er því vissara að koma þessum plöntum fyrir þar sem kettirnir ná ekki til og kannski besta lausnin að vera með gerviblóm svo dýrin séu ekki í neinni áhættu.

Á Facebook-síðu Dýraspítalans í Lögmannshlíð á Akureyri kom góð færsla fyrir nokkrum árum um hvað skal varast fyrir dýrin okkar um jólin og má lesa hér að neðan.

Matur: Það er mikið af góðum mat og alls kyns kræsingum á heimilinu sem þarf að passa að dýrin komist ekki í. Þá geta þau fengið alvarlegar meltingatruflanir, uppköst og þarmabólgur. Rúsínur í kökum, grautum og brauði eru sérstaklega hættulegar og geta leitt til nýrnabilunar. Súkkulaði er líka varasamt, smábiti, 50 grömm, getur valdið eitrun hjá smáhundum. Kjötbein eru hættuleg hundum sem ekki eru vanir þeim, geta valdið alvarlegum stíflum í meltingavegi. Gleymið ekki pökkunum, hundar með sín næmu nef finna ætar gjafir og stela þeim og éta með umbúðum og skrautborðum sem er ekki gott.

Gestir: Jólin er hátíð fjölskyldu og vinaheimsókna, oft er fjölmenni á heimilinu og glatt á hjalla. Sum gæludýr njóta athyglinnar en öðrum finnst þetta mjög stressandi og verða hrædd. Leyfið þeim að vera afsíðis á öruggum stað og hafa eitthvað gott að naga.

Vetrargöngur: klaki og snjór getur hlaðist upp á milli tánna, sérstaklega hjá hundum með loðna fætur. Möl og snjór mynda líka klakahröngl sem særir hundinn. Skolið loppurnar vel með volgu vatni þegar heim er komið. Úlpur og peysur eru alveg nauðsynlegar fyrir þunnhærða hunda í kuldanum.

Passa hæfilega fóðrun! Dýrin eru meira inni yfir jólin og kaldasta tíma ársins. Varist offóðrun – ofþyngd gæludýra veldur ýmsum sjúkdómum eins og hjartveiki, sykursýki og gigt. Látið dýrin naga meira og éta minna!

Skreytingar: Alls kyns skraut, greinar og jólatré eru freistandi leikföng fyrir gæludýr. Passa að dýrin nagi það ekki, þau eyðileggja þá ekki bara fallegar skreytingar heldur geta líka gleypt eða skorið sig á greinum og brotnum jólakúlum. Uppskurðir vegna aðskotahluta í maga og þörmum eru algengari um jól og áramót en annars.

Plöntur: Látið dýrin alls ekki naga greinar og jólaplöntur, margar þeirra eru eitraðar fyrir dýr eins og liljur og jólarósir. Einnig geta dýrin særst illa í munni undan barrgreinum ( og jafnvel gleypt greinar).

Áramót: flest dýr eru eðlilega hrædd við sprengingar, blys og hvell hljóð. Hafið dýrin inni um áramótin meðan sprengingarnar standa yfir. Hafið þau í ró og gjarnan tónlist til að dreifa huganum. Mörg dýr þurfa lyf gegn hljóðhræðslu til að fá ekki streitueinkenni og best er að nálgast þau seinni hluta desember þar sem sprengdir eru flugeldar strax milli jóla og nýárs. Einnig er hægt að fá Feromón efni - D.A.P sem vinnur gegn kvíða og hræðslu. Það er hægt að fá sem hálsól, úða og einnig úða með úðakló. Gott að byrja notkun á því u.þ.b. 10 dögum fyrir áramótin. Við hér á dýraspítalanum höfum góða reynslu að því.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir