Opnað fyrir umsóknir um nýliðunarstuðning í landbúnaði
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Fréttir
02.08.2021
kl. 12.01
Atvinnu- og Nýsköpunarráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um nýliðunarstuðning í landbúnaði í samræmi við IV. kafla reglugerðar nr. 430/2021 um almennan stuðning við landbúnað. Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði.
Þeir einstaklingar einir geta sótt um stuðning sem uppfylla neðangreindar kröfur:
- Uppfylla skilyrði skv. 3. gr. reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað
- Eru á aldrinum 18-40 ára á því ári sem óskað er eftir stuðningi.
- Eru að kaupa búrekstur eða hlut í búrekstri í fyrsta skipti eða hafa leigt eða keypt búrekstur innan þriggja ára frá 1. janúar á umsóknarári.
- Hafa ekki áður hlotið nýliðunarstuðning samkvæmt reglugerð þessari að teknu tilliti til 17. gr.
- Hafa ekki hlotið nýliðunarstuðning í mjólkurframleiðslu eða bústofnskaupastyrki til frumbýlinga í sauðfjárrækt samkvæmt þágildandi reglum árin 2015-2016.
- Hafa með sannarlegum hætti lagt út fyrir fjárfestingu annaðhvort með eigin fé eða lántöku.
Fylgiskjöl með umsókn eru eftirfarandi:
- Yfirlýsing um að umsækjandi sé nýliði.
- Upplýsingar um eignarhald lögaðila úr fyrirtækjaskrá RSK, sé um lögaðila að ræða.
- 5 ára rekstraráætlun með greinargerð, unnin af fagaðila, svo sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
- Afrit af þinglýstum kaupsamningi vegna fjárfestingar sem óskað er stuðnings við.
- Afrit af reikningum fyrir kaupum.
- Afrit af leigusamningi, ef við á.
Áhugasömum umsækjendum er bent á að kynna sér breyttar forgangsreglur.
Umsóknum skal skila inn á www.afurd.is greiðslukerfi landbúnaðarins og er umsóknarfrestur 1. september n.k.
/SMH
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.