Nýr Þverárfjallsvegur í Refasveit og Skagastrandarvegur um Laxá boðnir út

Mynd: vegagerdin.is
Mynd: vegagerdin.is

Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í eftirlit með byggingu nýs Þverárfjallsvegar í Refasveit frá Hringvegi norðan Blönduóss að núverandi Þverárfjallsvegi, um 8,5 km að lengd og nýs Skagastrandarvegar frá nýjum Þverárfjallsvegi að Skagastrandarvegi norðan Höskuldsstaða, um 3,3 km að lengd.

Á Skagastrandarveg skal byggja nýja 106 m langa brú á Laxá í Refasveit. Brúin er í þremur höfum, steinsteypt og eftirspennt. Einnig skal byggja nýjar tengingar og heimreiðar, samtals um 4,5 km að lengd.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð. Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í 1. nóvember 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu Tendsign og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. ágúst 2021.

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þriðjudaginn 24. ágúst 2021 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

/Fréttatilkynning

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir