Magnús Þór Jónsson sækist eftir formannssæti í Kennarasambandi Íslands
„Í kjölfar afskaplega fallegra áskorana undanfarna daga og vikur hef ég ákveðið að bjóða mig fram til að leiða breiðfylkingu íslenskra kennara í Kennarasambandi Íslands,“ skrifar Magnús Þór Jónsson í tilkynningu til fjölmiðla.
Hann segir kennslu vera sér hugsjón, sína ástríðu og hefur verið starfsvettvangur hans allt frá árinu 1994, viðfangsefnin hafi verið ólík innan kennslustofunnar og ekki síður eftir að hann varð skólastjórnandi um síðustu aldamót: „Viðfangsefni sem hafa vonandi búið mig víðtækri reynslu og hæfni. Snemma á kennsluferlinum var mér treyst til trúnaðarstarfa fyrir kennara og hefur það haldist allan minn starfsferil. Fyrst fyrir hópum kennara á mínum fyrstu kennarastofum og síðar á vettvangi skólastjórnenda. Ég var formaður félags skólastjórnenda á Vesturlandi og hef gegnt þeirri stöðu í Reykjavík nú frá haustinu 2016.
Í öllum mínum störfum hef ég leitast við að gæta hagsmuna nemenda minna og eftir að stjórnun varð mitt viðfangsefni hef ég tekið það mjög alvarlega að búa sérfræðingunum, kennurum, það starfsumhverfi og þann sveigjanleika sem er árangursríkur fyrir starf þeirra með árangur nemenda að leiðarljósi. Valdefling menntunar byggir á valdeflingu kennarans og möguleikum hans til að tileinka sér þá starfshætti sem leiða af sér gæði í skólastarfi.“
Magnús segir árangur í skólastarfi nást með samhentu átaki þeirra sem í skólunum starfa. Lykillinn að farsæld sé samstarf þeirra sem leiða starfið.
„Í trúnaðarstörfum mínum, nú síðast í Reykjavík, hef ég lagt mikið upp úr því að sameiginleg sýn og hagsmunir kennara og stjórnenda séu í hávegum höfð og leiðin að því marki sé hreinskiptið og lausnarmiðað samtal. Sama á við þegar kemur að samstarfi skólastiganna þriggja, það verður farsælast á sama hátt. Ég hef ásamt formanni Kennarafélags Reykjavíkur unnið þetta kjörtímabil hönd í hönd að baráttumálum kennara og skólastjórnenda í Reykjavík enda erum við svo sannarlega öll í sama liði. Við höfum á sama hátt staðið þétt með hagsmunamálum félaga okkar í leikskólum Reykjavíkur jafnt kennurunum og stjórnendum leikskólanna.“
Það er stórt verkefni að verða formaður í Kennarasambandi Íslands, segir Magnús og bendir á að framundan séu miklar áskoranir og óendanlegir möguleikar fyrir íslenskt menntakerfi að vaxa og taka forystu þegar kemur að framsæknu námi sem er grunnurinn fyrir framtíð lands og þjóðar. Til formanns séu gerðar kröfur að vera talsmaður kennara á ólíkum skólastigum og þeim kennurum sem hafa verið valdir til skólastjórnunar þar en einnig að búa að framsýni byggðri á reynslu af skólastarfi.
„Formaður KÍ leiðir fylkingu ólíkra kennarahópa og á að tileinka sér nútíma stjórnunarhætti á þann hátt að leiða lausnarmiðað samtal byggt á valdeflingu kennara á öllum skólastigum. Hlutverk formannsins er ekki síður að vera talsmaður menntunar á innlendum sem erlendum vettvangi og leggja allt sitt af mörkum til að sýna fram á mikilvægi hennar og eflingu í samtali þjóðar.
Ég tel mig hafa það sem þarf til að leiða þá öflugu fylkingu sem gegnir forystuhlutverki innan KÍ. Sjálfstæð og öflug aðildarfélög KÍ ber að líta á sem traustar stoðir fyrir formann KÍ að starfa á. Hann á að vera viðbót við þeirra góðu störf og framlenging á þeirra stefnu á opinberum vettvangi. Umfram allt á hann að þjóna sínum félagsmönnum eins og aðrir þeir sem valdir eru til starfa fyrir stéttarfélög kennara og stjórnenda í landinu. Ég mun leggja mig fram um að vinna að hagsmunamálum kennara ef að ég verð valinn sem þeirra forystumaður.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.