Lagfæra þarf stífluna við Laxárvatnsvirkjun

Stífla Laxárvatnsvirkjunar í Austur-Húnavatnssýslu. MYND AF VEF RARIK
Stífla Laxárvatnsvirkjunar í Austur-Húnavatnssýslu. MYND AF VEF RARIK

Húnahornið segir frá því að steypuskemmdir eru í vegg Laxárvatnsvirkjunar við Laxá á Ásum og hefur RARIK óskað eftir heimild frá Húnavatnshrepps til viðgerða á stíflunni.

„Að mati RARIK er nauðsynlegt að þétta stífluna og styrkja og verður það gert með því að klæða hana að innan með dúk og fylla þar að með möl og kjarnaefni. Að framan verður stíflan styrkt með grófum kjarna og grjóti.Leyfi hefur fengist frá Fiskistofu vegna framkvæmdarinnar, sem og frá landeigendum báðu megin ár og frá þremur stjórnarmönnum í veiðifélagi Laxár á Ásum,“ segir í fréttinni á Húni.is.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir