Jólapeysan hennar Ingu Heiðu bar sigur úr býtum
Feykir sagði frá því fyrir nokkrum dögum síðan að Inga Heiða Halldórsdóttir frá Miklabæ í Óslandshlíðinni hafi tekið þátt í leik sem Pósturinn setti á laggirnar en það var leitin að svakalegustu jólapeysunni.
Fjölmargir sendu inn myndir og treystu Póstmenn sér ekki til að velja úr öllum þessum svakalegu jólapeysum og létu það í hendurnar á almenningi að kjósa og viti menn.... jólapeysan hennar Ingu Heiðu bar sigur úr býtum og er því svakalegasta jólapeysan árið 2023. Til hamingju Inga Heiða með þennan titil. Í verðlaun fékk hún senda gjafakörfu sem vonandi á eftir að koma til góðs yfir hátíðina en nú er spurning hvort Inga eigi eftir að leggja metnað í að koma með nýja svakalega jólapeysu á næsta ári... Til hamingu Inga!
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.