Húnahornið velur Jólahús Húnabyggðar í 22. skiptið
Á heimasíðu Húnahornsins (huni.is) segir að sú hefð hefur skapast í desember að velja Jólahús ársins á Blönduósi og nú sé svæðið útvíkkað yfir alla Húnabyggð. Um er að ræða samkeppni eða jólaleik um fallega jólaskreytt hús, hvort sem það er íbúðarhús eða fyrirtækjahúsnæði. Samkeppnin um Jólahúsið 2023 verður með svipuðu sniði og síðust ár og er þetta í 22. sinn sem Húnahornið stendur fyrir vali á Jólahúsi ársins.
Til að taka þátt í jólaleiknum er tilnefning send inn í gegnum rafrænan atkvæðaseðil sem finna má hér. Hverjum og einum er heimilt að senda inn eina tilnefningu. Það hús sem fær flestar tilnefningar verður valið Jólahús ársins 2023 í Húnabyggð. Samkeppnin stendur til miðnættis á annan í jólum 26. desember nk. og verða úrslit gerð kunn daginn eftir.
Þau hús sem hlotið hafa viðurkenningu eru:
2001: Brekkubyggð 17
2002: Hlíðarbraut 13
2003: Garðabyggð 1
2004: Hlíðarbraut 13
2005: Hlíðarbraut 8
2006: Sunnubraut 3
2007: Ekkert val
2008: Hlíðarbraut 8
2009: Hlíðarbraut 4
2010: Mýrarbraut 35
2011: Melabraut 19
2012: Mýrarbraut 33
2013: Heiðarbraut 1
2014: Hlíðarbraut 1
2015: Skúlabraut 1
2016: Aðalgata 10
2017: Skúlabraut 22
2018: Hólabraut 11
2019: Brekkubyggð 21
2020: Urðarbraut 15
2021: Heiðarbraut 12
2022: Brekkubyggð 5
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.