Harbour restaurant ehf tekur við Fellsborg og skólamáltíðum

Á fundi sínum þann 21. maí sl. ákvað sveitastjórn Skagastrandar að auglýsa eftir rekstraraðilum til að sjá um félagsheimilið Fellsborg og skólamáltíðir í Höfðaskóla, en skólamötuneytið er staðsett í Fellsborg.

Á fundi sveitastjórnar í dag, þann 25. júní, lágu fyrir tvær umsóknir um rekstur Fellsborgar og samning um skólamáltíðir. Liya Behaga sóttist eftir því að gera samning um rekstur á fellsborg og skólamáltíðum en einnig eftir því að gera eingöngu samning um skólamáltíðir. Birna Sveinsdóttir sótti einnig um að sjá um skólamáltíðir og rekstur Fellsborgar f.h. Harbour restaurant ehf.

Sveitastjórn fór yfir umsóknir og samþykkti samhljóða að ganga til samninga við Harbour restaurant ehf. og fól sveitastjóra að vinna málið áfram.

/SMH

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir