Garðfuglahelgin að vetri hefst á föstudaginn
Árlega fitjar Fuglavernd upp á talningu garðfugla yfir eina helgi og segir á heimasíðu hennar að venjulega sé um síðustu helgina í janúar að ræða. Gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að hefja daglegar fóðurgjafir til að lokka að fugla, eftir því sem fram kemur á fuglavernd.is. „Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma yfir tiltekna helgi. Skrá hjá sér hvaða fugla viðkomandi sér og mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir, þ.e. þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir.“
Til að hjálpa þeim sem ekki eru klárir á hvaða fuglar heimsækja garðinn hefur Fuglavernd útbúið hjálparblað með myndum sem hægt er að prenta út og nota við talninguna. Hægt er að nálgast það HÉR.
Mælt er með að skrá niðurstöður rafrænt að lokinni athugun og senda í tölvupósti á gardfugl@gmail.com en einnig eru aðrar leiðir í boði. Þá er hægt að prenta út skráningarform sem sent er til Fuglaverndar, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík.
HÉR er hægt að fræðast um fóðrun garðfugla, en á heimasíðu Fuglaverndar er einnig hægt að finna fróðleik um garðyrkju í fuglagarðinum og garðfuglategundir.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.