Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi samþykktur
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Fréttir
27.07.2021
kl. 08.17
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn
Á fundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi sem fram fór þann 25. júli, var listi flokksins fyrir komandi kosningar samþykktur.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, leiðir listann. Í öðru sæti er Haraldur Benediktsson, alþingismaður og bóndi. Í þriðja sæti er Teitur Björn Einarsson, lögfræðingur og varaþingmaður. Í fjórða sæti er Sigríður Elín Sigurðardóttir, sjúkraflutningakona og í fimmta sæti er Guðrún Sigríður Ágústsdóttir, ráðgjafi.
Listinn í heild sinni:
1 | Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir | Varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra |
2 | Haraldur Benediktsson | alþingismaður og bóndi |
3 | Teitur Björn Einarsson | Lögfræðingur og varaþingmaður |
4 | Sigríður Elín Sigurðardóttir | Sjúkraflutningakona |
5 | Guðrún Sigríður Ágústsdóttir | Ráðgjafi |
6 | Örvar Már Marteinsson | Skipstjóri |
7 | Magnús Magnússon | Sóknarprestur |
8 | Lilja Björg Ágústsdóttir | Lögmaður og forseti sveitarstjórnar |
9 | Bjarni Pétur Marel Jónasson | Aðhlynning |
10 | Bergþóra Ingþórsdóttir | Nemi í félagsráðgjöf |
11 | Friðbjörg Matthíasdóttir | Oddviti í Vesturbyggð og viðskiptafræðingur |
12 | Sigrún Hanna Sigurðardóttir | Búfræðingur og bóndi |
13 | Anna Lind Særúnardóttir | Meistaranemi í félagsráðgjöf |
14 | Gísli Sigurðsson | Framkvæmdastjóri Tengils og formaður Byggðaráðs |
15 | Guðmundur Haukur Jakobsson | Pípulagningameistari og forseti sveitarstjórnar |
16 | Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir | Viðskiptafræðingur |
/SMH
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.