Engin jól án bóka
Feykir kynnir til leiks bókaunnandann Kristínu Jónu Sigurðardóttur en hún fer yfir bók-haldið sitt með lesendum Feykis. Hún er kennari og þroskaþjálfi en er nú í ársleyfi frá Húnavallaskóla og kennir í vetur við Blönduskóla á Blönduósi. „Mandarínur eru það allra besta með jólabókinni. Það tengi ég við barnæskuna og borða enn mandarínur í kílóavís á aðventu og jólum,“ segir Kristín þegar hún er spurð hvað fari best með jólabókinni.
Foreldrar Kristínar bjuggu í Vík í Mýrdal en mamma hennar skaust til Reykjavíkur til að eiga hana. Það var árið 1973 en Kristín Jóna er uppalin á Skagaströnd en býr nú á Blönduósi, flutti þangað 2006 og er í hjónabandi með Val Valssyni sem starfar hjá rafmagnsverkstæðinu Átaki og stundar einnig nám í rafvirkjun. Þau eiga tvær dætur, Þóru Karen (23) og Völu Berglindi (20) sem báðar eru nemar.
Er búið að ákveða hvað verður í matinn á aðfangadagskvöld? „Eftir að mamma og stjúppabbi fóru að rugla saman reitum var alltaf tvíréttað á jólunum á æskuheimilinu. Hann var vanur að hafa rjúpur og við mæðgur vanar að borða hamborgarhrygg. Eftir að ég fór svo sjálf að halda jól hef ég haft sama háttinn á, enda maðurinn minn vanur að borða rjúpur en dæturnar geta ekki hugsað sér að smakka þær.“
Hvaða bók ertu að lesa núna? „Núna er ég að lesa bókina Vertu úlfur eftir Héðin Unnsteinsson. Ég fór á leiksýninguna nýliðna helgi og var alveg heilluð. Ég hafði ekki lesið bókina fyrir sýningu en fann hjá mér mikla þörf til að kíkja í hana eftir þessa frábæru leikhúsupplifun. En á kennaraborðinu er bókin Fíasól í hosíló eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Það er fátt eins skemmtilegt og að lesa fyrir börn, því reyni ég að gera eins mikið af því og ég get fyrir börnin í skólastofunni minni.“
Hver er uppáhaldsbókin af þeim sem þú hefur lesið gegnum tíðina? „Ljósa eftir Kristínu Steinsdóttur kemur fyrst upp í hugann.“
Hvers konar bækur lestu helst? „Ég er alæta á bækur, nánast. Mér finnst gott að skiptast á að lesa létta krimma og svolítið þéttari bækur. Ég er mjög hrifin af bókum Ragnars Jónassonar og Arnaldar. Ég les líka allt sem ég kemst yfir eftir Söru Blædel. Ég á mér líka eitt bókaleyndarmál. Mér finnst mjög gaman að lesa ævisögur, sem stjórnast sennilega af því að ég er svo forvitin.“
Bíð alltaf spennt eftir jólabókaflóðinu
Hvaða bækur voru í uppáhaldi hjá þér þegar þú varst barn? „Mér gekk mjög hægt að læra að lesa en mamma var mjög dugleg að lesa fyrir mig langt fram eftir aldri. Hún las t.d. allar Öddu bækurnar eftir Jennu og Hreiðar og Tobíasar bækurnar eftir Magneu frá Kleifum. Uppáhalds barnabókin mín er Bróðir minn ljónshjarta. Hana las ég sjálf þegar ég var um fermingu og fannst hún frábær. Síðan þá hef ég lesið hana nokkuð oft, bæði sjálf og upphátt fyrir börn.“
Er einhver ein bók sem hefur sérstakt gildi fyrir þig? „Ég á eitt lítið ljóðakver sem ég erfði eftir gamlan frænda, Eirík Jónsson. Eiki frændi var sérstaklega barngóður maður og var mikill vinur minn. Í þessu kveri eru frumvísurnar um hann Gamla Nóa, sem var guðhræddur og vís. Þessar vísur kenndi Eiki mér og við sungum saman.“
Bíðurðu spennt eftir bókum frá einhverjum höfundi? „Ég bíð alltaf spennt eftir jólabókaflóðinu en ég er ekkert sérstaklega að bíða eftir bókum frá sérstökum höfundi.“
Áttu þér uppáhalds bókabúð? „Það er alltaf rosalega gaman að koma í bókabúðir. Lyktin og stemmingin er alveg sérstök en ég á mér enga uppáhalds búð.“
Hversu margar bækur heldurðu að þú eignist árlega? „Ég fæ alltaf einhverjar bækur í jólagjöf eða í skóinn á aðfangadagsmorgun. Ég kaupi mér stundum kiljur ef ég verð uppiskroppa með lesefni á ferðalögum en annars fæ ég bara bækur að láni.“
Ertu fastagestur á einhverju bókasafni? „Ég er náttúrulega fastagestur á bókasafninu í Blönduskóla en telst ekki til fastagesta á öðrum bókasöfnum. Það lesa mjög margir í kring um mig og fæ því oft lánaðar bækur hjá vinum og vandamönnum. Við erum líka með skiptibókahillu í vinnunni og oft finn ég þar bækur til að lesa.“
Gjafir eru gefnar af góðum hug
Hvaða bækur lestu fyrir börnin þín? „Ég er hætt að lesa bækur fyrir börnin mín. Dæturnar eru orðnar 23 og 20 ára, svo þær hafa ekkert gaman af því lengur. Nú er ég farin að lesa yfir ritgerðir og verkefni fyrir þær svo lestur skiptir enn heilmiklu máli í okkar samskiptum. Hér áður fyrr lásum við hjónin mikið fyrir dæturnar og var ekki hægt að fara að sofa nema fá smá kvöldlestur. Mest lesnu bækurnar voru eftir Astrid Lindgren, bæði Lotta og Lína. Bækurnar hennar Kristínar Helgu um Fíusól voru líka vinsælar. En vinsælust var sennilega Þriðji ísbjörninn eftir Þorgrím Þráinsson. Það stjórnast mjög líklega af sögusviði bókarinnar en bókin gerist hér í okkar sýslu.“
Hefur þú heimsótt staði sérstaklega vegna þess að þeir tengjast bókum sem þú hefur lesið? „Nei, það hef ég ekki gert, en ég hef upplifað staði sem ég hef heimsótt mjög sterkt í gegnum bækur. Þetta upplifði ég mjög sterkt þegar ég las Konungsbók eftir Arnald Indriðason. Sagan gerist í Kaupmannahöfn, sem er uppáhalds borgin mín, og við lesturinn lifnaði borgin hreinlega við og ég ferðaðist með sögupersónum um borgina.“
Hver er eftirminnilegasta bókin sem þú hefur fengið að gjöf? „Það að fá gjöf er eitt og sér mjög eftirminnilegt því gjafir eru gefnar af góðum hug. En engin ein bók stendur upp úr.“
Hver var jólabók æsku þinnar? „Jólabækur hafa alltaf skipt mig miklu máli. Engin jól án bóka. Eftir að ég varð fullorðin finnst mér ekkert jólalegra en að skríða upp í rúm á aðfangadagskvöld með góðan krimma (ekki beint jólalegt..). En ég man ekki eftir neinni sérstakri jólabók frá æskuárunum en sagan af Litlu stúlkunni með eldspýturnar tengist æskujólunum. Ég fann til mikillar samkenndar og hef því reynt að gera alltaf a.m.k. eitt góðverk fyrir hver jól.“
Hvað er best með bóklestri? Lesgleraugu – núna í seinni tíð.
Ef þú ættir að gefa einhverjum sem þér þykir vænt um bók, hvaða bók yrði þá fyrir valinu? „Mér finnst alltaf skemmtilegast að gefa börnum bækur og mér finnst líka skemmtilegast að kaupa barnabækur. Þannig að góð barnabók handa lítilli frænku eða frænda yrði fyrir valinu,“ segir Kristín Jóna að lokum.
- - - - - -
Bók-hald Kristínar var fyrst gefið upp í JólaFeyki 2021.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.