Engar tilkynningar um kórónuveirusmit í minkum á Íslandi
Í ljósi smita af stökkbreyttu afbrigði kórónaveiru úr minkum í fólk í Danmörku ætlar Matvælastofnun að hefja skimun fyrir kórónaveiru á minkabúum landsins. Ekki er grunur um að kórónaveirusmit hafi komið upp á minkabúum hérlendis. Á heimasíðu MAST kemur fram að þegar fregnir hafi borist af kórónuveirusmiti úr fólki í minka í sumar sendi Matvælastofnun tilmæli til íslenskra minkabænda um hertar sóttvarnir á búunum og að einstaklingar með sjúkdómseinkenni haldi sig fjarri þeim.
Minkabændur hafa verið beðnir um að tilkynna til Matvælastofnunar vakni grunur um veikindi í minkum en engar tilkynningar um það hafa borist enn. Ef smit greinist á búunum mun stofnunin skoða frekari aðgerðir í samráði við heilbrigðisyfirvöld.
„Í gær greindu Danir frá niðurskurði á öllum minkum á minkabúum í Danmörku vegna kórónaveirusmita sem bárust úr minkum í fólk. Um stökkbreytt afbrigði veirunnar er að ræða sem talið er að hafi borist upprunalega úr fólki í minka. Hætta er á að þau bóluefni sem eru í þróun gegn kórónaveirunni virki ekki á stökkbreytt afbrigði veirunnar.
Litlar líkur eru á smiti yfir í villta minkastofninn þar sem umgengni við menn er í lágmarki,“ segir á mast.is. Á Íslandi eru starfrækt níu minkabú á Norðlandi vestra og Suðurlandi með alls 15.000 eldislæðum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.