Eingöngu leyfilegt að veiða rjúpu eftir hádegið
Veiðitímabil rjúpu hefst í dag 1. nóvember og stendur út mánuðinn en samkvæmt tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu er heimilt að veiða fimm daga í viku, frá föstudegi til þriðjudags, en veiðibann á miðvikudögum og fimmtudögum líkt og undanfarin ár.
Sú breyting er þó gerð á að ekki verður heimilt að hefja leit eða veiði á rjúpu fyrr en kl. 12.00 þá daga sem heimilt er að veiða og skal veiði eingöngu standa á meðan birtu nýtur. Ítrekað er í tilkynningu ráðuneytisins að sölubann er á rjúpum og á það jafnt við um sölu til endursöluaðila og annarra og eru veiðimenn hvattir til að takmarka veiðar í ljósi bágrar stöðu rjúpnastofnsins.
Ennfremur er ás það bent í tilkynningunni að stærð rjúpnastofnsins hafi dregist saman síðustu ár og hefur ekki verið minni síðan árið 2003. „Veiðistofninn er einn sá minnsti síðan mælingar hófust árið 1995 og aðeins einu sinni áður, árið 2002, hefur veiðistofninn verið metinn svo lítill. Fyrir liggur veiðiþol rjúpnastofnsins samkvæmt mati Náttúrufræðistofnunar Íslands sem er 20 þúsund fuglar í ár. Reynsla undanfarinna ára sýnir að raunveiði hefur verið talsvert umfram ráðgjöf þegar stofn rjúpu er í lágmarki, og var búist við um 30 þúsund fugla veiði miðað við óbreytta veiðistjórn. Því óskaði umhverfis- og auðlindaráðuneytið eftir frekari greiningu Umhverfisstofnunar á stjórntækjum vegna rjúpnaveiða með það að markmiði að halda heildarveiðinni við ráðlagðan fjölda, 20.000 fugla.“
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hvetur veiðimenn til að veiða ekki meira en þrjár til fjórar rjúpur þennan veturinn eða jafnvel að sleppa rjúpnaveiðinni í ár. „Til lengri tíma litið þá hefur rjúpnastofninn minnkað eins og fram kemur í mati Náttúrufræðistofnunar Íslands. Rjúpan er t.a.m. aðalfæða fálkans svo færri rjúpur þýða líka aukin afföll af fálkum. Í ofanálag veldur maðurinn auknu álagi á stofn sem er veikur fyrir. Við þurfum að reyna að tryggja sjálfbærni í veiðum og leita allra leiða til að fara ekki yfir mat á veiðiþoli, sérlega þegar stofninn er í lægð. Breytingarnar á veiðistjórnuninni og hófsemi í veiðum tryggja það vonandi. Ég hvet veiðimenn sérstaklega til að veiða ekki meira en 3-4 rjúpur eða bara sleppa því í ár svo rjúpan njóti vafans og minni á að í gildi er sölubann,“ segir Guðmundur Ingi.
Sjá nánar HÉR
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.