Daði í Júró og engin Söngvakeppni á næsta ári

Tónlistarmaðurinn Daði Freyr Pétursson keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision-söngvakeppninni í Rotterdam í maí. RÚV leitaði til Daða Freys sem samþykkti að semja lag í keppnina. „Okkur fannst það bæði rétt og sanngjarnt,“ segir Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri RÚV.

Lagið Think About Things með Daða og Gagnamagninu sigraði Söngvakeppnina 2020 en vegna COVID-19 var hætt við Eurovision sem átti að fara fram í Rotterdam. Á heimasíðu RÚV kemur fram að lagið hafi þó heldur betur slegið í gegn en það hefur nú þegar þetta er skrifað verið spilað tæplega 55 milljón sinnum á Spotify. Lagið vann áhorfendaverðlaunin í mörgum löndum Evrópu, m.a. í öllum hinum norrænu löndunum.

Það eina rétta í stöðunni
Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri RÚV er ánægður með að Daði Freyr hafi þekkst boðið um að taka aftur þátt. „Daði sigraði Söngvakeppnina 2020 með yfirburðum og viðtökurnar við íslenska framlaginu hafa aldrei verið svona góðar. Við erum því afar ánægð og stolt af því að geta sent þennan frábæra tónlistarmann og hans fólk út eins og til stóð að gera síðast. Auðvitað þurfti að skoða margt þegar þessi ákvörðun var tekin en eftir mikla umhugsun fannst okkur þetta það eina rétta í stöðunni, ekki síst í ljósi hinnar fordæmalausu stöðu sem upp kom í ár að engin Eurovision-keppni hafi verið haldin í fyrsta skipti í sögunni. Okkur fannst það bæði rétt og sanngjarnt,“ segir Skarphéðinn og bætir við: „Við teljum að þjóðin vilji eindregið að Daði og Gagnamagnið keppi fyrir okkar hönd í þessari keppni. Auk þess er óvissan svo mikil í dag að það er ekki einu sinni víst að við getum haldið Söngvakeppni í febrúar með almennilegum hætti.“

Daði Freyr segist afar spenntur fyrir því að fá að standa á Eurovision-sviðinu: „Ég er mjög spenntur fyrir þessu. Ástæðan fyrir því að ég keppti í Söngvakeppninni 2020 var til að prófa að fara með Gagnamagnskrökkunum að upplifa Eurovision innan frá. Við stefndum alltaf að því að sjá hversu langt við gætum komist í keppninni og það verður eins á næsta ári. Allt Gagnamagnið verður með. Aðalatriðið í þessu er að það verði gaman en ég held að það sé mest gaman að vinna. Nú vona ég bara að það verði haldin alvöru keppni,“ segir hann en nú þegar eru komnar pælingar varðandi lagið en ekkert sem er ákveðið.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir