Breyttar reglur um sóttkví útskrift að lokinni einangrun

Mynd tekin af vef heilbrigðisráðuneytis merkt: Þorkell/Landspítali.
Mynd tekin af vef heilbrigðisráðuneytis merkt: Þorkell/Landspítali.

Fyrir helgi breytti heilbrigðisráðherra reglum um sóttkví í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Breytingarnar byggja á faglegu mati og góðri bólusetningarstöðu þjóðarinnar. „Við þurfum að halda samfélaginu gangandi eins og framast er kostur, hvort sem við horfum til skólanna, velferðarþjónustu eða margvíslegrar atvinnustarfsemi og eins og staðan er núna eru þetta bráðnauðsynleg viðbrögð.“ segir Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra. Reglugerð um breytinguna hefur þegar tekið gildi.

Á vef heilbrigðisráðuneytisins segir að með breytingunum verði dregið úr takmörkunum á einstaklinga sem þurfa að sæta sóttkví ef þeir eru þríbólusettir gegn Covid. Um 160.000 einstaklingar séu nú þríbólusettir og því ljóst að breyttar reglur um sóttkví munu gjörbreyta stöðunni. Sama máli gegni um einstaklinga sem hafa jafnað sig af staðfestu smit og eru tvíbólusettir.

Breyttar reglur um sóttkví gilda um:

  1. a) einstaklinga sem eru þríbólusettir og fengu síðustu sprautuna meira en 14 dögum áður en viðkomandi er útsettur fyrir smiti.
  2. b) einstaklinga sem hafa jafnað sig af staðfestu Covid-smiti og eru jafnframt tvíbólusettir, að því gefnu að þeir hafi fengið síðari sprautuna meira en 14 dögum áður en þeir voru útsettir.

 

Breyttar reglur fela í sér að hlutaðeigandi er: 
heimilt að sækja vinnu eða skóla og sækja sér nauðsynlega þjónustu, s.s. heilbrigðisþjónustu, fara í matvöruverslanir og lyfjabúðir og nota almenningssamgöngur, 
óheimilt að fara á mannamót eða staði þar sem fleiri en 20 koma saman, nema í því samhengi sem nefnt er hér að ofan,
skylt að nota grímu í umgengni við alla nema þá sem teljast í nánum tengslum og gildir grímuskyldan einnig þótt hægt sé að halda tveggja metra fjarlægð,
óheimilt að heimsækja heilbrigðisstofnanir, þar með talin hjúkrunarheimili, nema með sérstöku leyfi viðkomandi stofnunar,
skylt að forðast umgengni við einstaklinga sem eru í aukinni hættu á alvarlegum veikindum ef þeir smitast af Covid-19.

Sjá nánar HÉR

Tilkynning varðandi útskrift að lokinni einangrun

Þá er athygli vakin á því  í færslu á vef heilbrigðisráðuneytisins að þeir sem lokið hafa sjö daga einangrun eftir staðfest smit af völdum Covid-19 geti nú og mega útskrifa sig sjálfir, að því tilskildu að þeir finni ekki fyrir sjúkdómseinkennum.

„Covid-göngudeild Landspítala hefur alla jafna samband við fólk fyrir útskrift, en vegna mikils álags er ekki skylt að bíða eftir skilaboðum frá Covid-göngudeildinni, að því gefnu að öll skilyrði fyrir útskrift séu uppfyllt. Einangrun hefst frá þeim tíma að telja sem fyrir liggur jákvætt PCR-próf um sýkingu viðkomandi. Hvorki jákvætt heimapróf né hraðpróf telst viðmið fyrir upphaf einangrunar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir