Breyttar reglur um sóttkví í skólum
Sóttvarnalæknir hefur endurskoðað leiðbeiningar um sóttkví á öllum skólastigum og í frístundastarfi og félagsmiðstöðvum. Á vef stjórnarráðsins kemur fram að með breytingunum megi gera ráð fyrir að færri þurfi að sæta sóttkví ef smit kemur upp.
Í leiðbeiningum eru skilgreind viðmið um sóttkví eftir því hvort samvera við smitaðan einstakling hafi verið mikil eða ekki því ef samskipti hafa ekki verið mikil samkvæmt skilgreiningu verður ekki gerð krafa um sóttkví heldur smitgát og getur viðkomandi þá mætt í skólann. Hraðpróf verða notuð þegar í hlut eiga einstaklingar sem einungis þurfa að sæta smitgát, eins og nánar er skýrt í leiðbeiningum sem hægt er að nálgast HÉR. Samkvæmt frétt stjórnarráðsins tekur reglugerðin gildi næstkomandi þriðjudag.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.