Bólusetningar hjá HSN í næstu viku
Í næstu viku verður þeim sem fengu Janssen bóluefni boðinn örvunarskammtur með Pfizer bóluefni. Ekki er mælt með að þeir sem eru með sögu um Covid -19 fái örvunarskammt í bili.
Að minnsta kosti 28 dagar þurfa að hafa liðið frá Janssen bólusetningunni til að geta mætt í örvunarskammt þó mælst sé til að bilið sé átta vikur. Allir munu fá boð í þessari eða næstu viku en geta einnig valið að koma á næstu vikum.
Þeir sem ekki hafa hafið bólusetningu eða eiga eftir að fá seinni skammt af Pfizer bóluefni eru einnig velkomnir á auglýstum tímum hér fyrir neðan.
Bólusett verður fyrir Norðurland á eftirtöldum stöðum:
- Fyrir Blönduós og Sauðárkrók
Í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki miðvikudaginn 11. ágúst kl: 15 -19.
- Fyrir Akureyri, Dalvík og Fjallabyggð
Á Slökkvistöðinni á Akureyri fimmtudaginn 12. ágúst kl: 10-17.
- Fyrir Húsavík, Þórshöfn, Kópasker, Raufarhöfn, Reykjahlíð og Laugar
Í Íþróttahöllinni á Húsavík miðvikudaginn 11. ágúst kl: 16-18:30.
Fleiri bólusetningardagar fyrir örvunarskammt verða á næstu vikum. Tíma- og staðsetningar verða auglýstar.
/Fréttatilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.