Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kosninga til Alþingis

Nú á hádegi, fimmtudaginn 23. september, hafa 562 kosið utankjörfundar hjá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra en hægt verður að kjósa á skrifstofum embættisins á Blönduósi og Sauðárkróki til 15:00 á kjördag. Opið er í dag til klukkan til kl. 19:00.

Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins sem hér segir:

Blönduósi, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 09:00 til 15:00. Fimmtudaginn 23. september er opið til kl. 19:00.
Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 09:00 til 15:00. Fimmtudaginn 23. september er opið til kl. 19:00.
Á kjördag verður opið á báðum skrifstofum embættisins frá kl. 13:00 – 15:00.

Á öðrum stöðum fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla fram sem hér segir:
Sveitarfélaginu Skagaströnd
, á skrifstofu sveitarfélagsins að Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd, kl. 10:00 – 12:00 og 13:00 – 15:00 virka daga.
Húnaþingi vestra, á bóka- og skjalasafni Húnaþings vestra að Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga, kl. 12:00 – 16:00 virka daga en til 19:00 fimmtudaginn 23. september.

Tengd frétt: Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kosninga til Alþingis laugardaginn 25. september 2021

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir