Ástrós segir sögur af jólum undir Spákonufelli

Bókarkápa Jóla undir Spákonufelli.
Bókarkápa Jóla undir Spákonufelli.

Í fyrra kom út bókin Jól undir Spákonufelli en það var Ástrós Elísdóttir sem skrifaði og gaf út. Sögusvið sagnanna er falið í titlinum, en undir hinu dulmagnaða Spákonufelli kúrir þorpið Skagaströnd, heimkynni höfundar síðustu ár. „Sagan er í senn næm, ljúf, óvænt og sprenghlægileg og það er erfitt að komast hjá því að tárast á fallegustu stöðunum en þeir eru margir,“ segir Júlía Margrét Einarsdóttir í umsögn um Jól undir Spákonufelli. Bókin er myndskreytt af Tommaso Milella teiknara. Þetta er fyrsta bók Ástrósar og Feykir lagði fyrir hana nokkrar spurningar.

Andlitið á Ástrós hefur dúkkað upp á síðum Feykis af og til síðustu árin en „síðan sumarið 2015 hefur Ástrós verið búsett á Skagaströnd ásamt fjölskyldu sinni en áður en hún flutti norður í land var hún fræðslustjóri Borgarleikhússins. Á Skagaströnd hefur hún unnið að fjölmörgum verkefnum tengdum leik og söng, m.a. þýtt söngleiki og gamanverk, tekið að sér námskeiðahald og verkefnastjórnun og unnið að framkvæmd fyrstu barnamenningarhátíðar landshlutans sem er á dagskrá vorið 2022. Ástrós starfar nú hjá SSNV sem verkefnastjóri Sóknaráætlunar Norðurlands vestra og við atvinnuráðgjöf með sérstaka áherslu á stuðning við menningartengda starfsemi. En vindum okkur í spjallið...

Gætirðu sagt okkur aðeins frá bókinni Jól undir Spákonufelli? „Ég gaf bókina út fyrir síðustu jól og húnsamanstendur af fjórum sjálfstæðum smásögum sem þó mynda heild, svokallaðan sagnasveig, en það bókmenntaform er nokkurn veginn miðja vegu milli smásögunnar og skáldsögunnar, með öll einkenni smásagna en heildarblæ skáldsögunnar vegna þeirra tenginga sem eru á milli allra smásagnanna. Þær gerast allar sama kvöldið, nokkrum dögum fyrir jól, á sama sögusviði - undir Spákonufellinu - og í þeim mætast tveir heimar eða víddir, en þó aldrei með sama hætti. Jólahefðir og þjóðmenning eru rauður þráður í gegnum sögurnar, ilmur af greni, mandarínum og piparkökum,“ segir Ástrós

Fyrir hverja er bókin? „Hún ætti að höfða jafnt til barna sem fullorðinna jólabarna en þetta er bók sem er gaman fyrir ólíkar kynslóðir að lesa saman og þau sem eldri eru geta hjálpað þeim yngri að koma auga á tengingar og fróðleik sem bundinn er við svæðið og hefðirnar okkar.“

Er byrjuð á næstu bók

Hvernig kom það til að þú skrifaðir bókina? „Tilurð fyrstu sögunnar var sprottin af nauðsyn, en ég var beðin um að lesa upp jólasögu á litlu jólunum í Höfðaskóla á Skagaströnd og kvöldið áður en að upplestrinum kom var ég að leita að sögu en fann enga sem mér leist á, svo ég ákvað að skrifa frekar sögu sjálf. Jólasögunni var vel tekið og hefur hún verið lesin síðan fyrir yngstu nemendur Höfðaskóla í desember. Þegar ég var svo að ljúka meistaranámi í ritlist árið 2019 ákvað ég að bæta við þennan sagnaheim og skrifaði hinar sögurnar þrjár. Ég sótti svo um styrk í Uppbyggingarsjóð það haust til að gefa bókina út og fékk hann, svo ég fékk spark í rassinn til að ganga í málið árið 2020. Ég stofnaði lítið fyrirtæki með manninum mínum, Mosató ehf., setti bókina upp og gaf hana út.“

Hvar er hægt að nálgast Jól undir Spákonufelli? „Ég er að selja bókina sjálf í gegnum netið en hún er líka til sölu í verslunum Pennans og auðvitað í Spákonuhofi á Skagaströnd. Heimasíðan mín er https://www.undirspakonufelli.comog þar er að finna ýmsar upplýsingar, m.a. um mig og Tommaso Milella, ítalskan fjölskylduvin sem teiknaði allar myndirnar í bókinni – þó hann hafi reyndar enn ekki komið til Íslands.“

Ástrós bendir á að á heimasíðunni er að finna tvær umsagnir um bókina frá öðrum rithöfundum en þar segir Arndís Þórarinsdóttir: „Í Jólum undir Spákonufjalli koma saman lifandi sögusvið, mikil frásagnargleði og sannur jólaandi! Yndisleg aðventubók fyrir alla fjölskylduna.“
Júlía Margrét Einarsdóttir skrifar: “Ástrós tekst að skapa ljóslifandi og gullfallegan töfraheim með piparkökum, snjókornum og mandarínuilmi. Ýmsir þjóðlegir vættir dúkka upp en enginn fær að hitta þau nema auðvitað krakkarnir, því fullorðnir skilja ekki allt. En bókin hentar öllum aldri, krakkarnir sogast inn í galdraveröldina og þeir sem eldri eru með þeim.
Sagan er í senn næm, ljúf, óvænt og sprenghlægileg og það er erfitt að komast hjá því að tárast á fallegustu stöðunum en þeir eru margir.
Fyrir krakka á öllum aldri sem hlakka til jólanna en líka þá sem hafa enn ekki fundið andann hellast yfir sig er Jól undir Spákonufelli rétta bókin.”

„Ég er byrjuð á næstu bók, Sól undir Spákonufelli, en veit ekki hvenær hún kemur út,“ segir Ástrós að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir