Alvarleg vanræksla á búfé kærð til lögreglu

Matvælastofnun hefur kært til lögreglu alvarlega vanrækslu á búfé á nautgripa- og sauðfjárbúi á Vesturlandi en eftir því sem fram kemur á heimasíðu stofnunarinnar er um að ræða eitt umfangsmesta og alvarlegasta dýravelferðarmál sem komið hefur upp hér á landi.

Fram kemur í tilkynningu MAST að á þriðja tug nautgripa og um 200 fjár, auk fimm hænsna, drápust eða voru aflífuð vegna skorts á fóðri og brynningu. Vörslusvipting hefur farið fram á um 300 kindum sem eftir eru á bænum og þeim tryggð fóðrun og umhirða og unnið er að ráðstöfun fjárins. Matvælastofnun hefur bannað bóndanum tímabundið allt dýrahald uns dómur fellur í málinu. Öllum hræjum hefur þegar verið fargað á viðurkenndum urðunarstað.

Búið hefur þrisvar sinnum fengið eftirlitsheimsókn frá Matvælastofnun á síðastliðnum sex árum en í færslu MAST segir að ekki hafi komið fram alvarleg frávik við fóðrun eða aðbúnað í þeim heimsóknum. Síðasta reglubundna skoðun fór fram vorið 2021. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglunni á Vesturlandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir