Allar Covid-19 samkomutakmarkanir falla úr gildi

Frá Landsmóti hestamanna á Hólum 2016. Mynd/ÓAB
Frá Landsmóti hestamanna á Hólum 2016. Mynd/ÓAB

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tilkynnti í morgun að allar takmarkanir á samkomum innanlands falli úr gildi á miðnætti í kvöld. Í því felst m.a. fullt afnám grímuskyldu, nándarreglu og fjöldatakmarkana.

„Í raun erum við að endurheimta á ný það samfélag sem okkur er eðlilegt að búa í og sem við höfum þráð, allt frá því að heimildir sóttvarnalaga til að takmarka samkomur voru virkjaðar vegna heimsfaraldurs fyrir rúmu ári, þann 16. mars 2020,“ segir heilbrigðisráðherra. Ákvörðun um afléttingu allra samkomutakmarkana er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis, segir á vef stjórnarráðsins, en þann 1. júlí taka gildi breyttar reglur varðandi sýnatökur á landamærum.

Á stjornarradid.is segir að um 87% þeirra sem áformað er að bólusetja hafi nú fengið a.m.k. eina sprautu, um 60% eru fullbólusett gegn Covid-19 og nú ættu öll sem ekki var áður búið að bjóða bólusetningu að hafa fengið slíkt boð. Áætlanir stjórnvalda um framgang bólusetningar og afléttingu samkomutakmarkana hafa því gengið eftir að fullu.

„Takmarkanir innanlands vegna Covid-19 hafa verið breytilegar á tíma heimsfaraldursins eftir stöðunni hverju sinni. Nándarregla og fjöldatakmarkanir hafa verið viðvarandi allt tímabilið, grímuskylda í einhverri mynd hefur gilt um langa hríð. Takmarkanirnar hafa gert það að verkum að allri mögulegri starfsemi hefur verið þröngt sniðinn stakkur og á tímabilum legið alveg niðri. Menningarlíf, íþróttastarf, skólastarf, veitingarekstur, ferðaþjónusta og fjölmargt annað hefur markast af gildandi reglum um samkomutakmarkanir á hverjum tíma. Með ákvörðun heilbrigðisráðherra um afléttingu allra samkomutakmarkana verða reglur um samkomur ekki háðar öðrum takmörkunum en almennt gilda í samfélaginu og giltu áður en heimsfaraldurinn skall á,“ segir í frétt stjórnarráðsins.

Sjá nánar HÉR

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir