Síðsumarsball í Árgarði 17. ágúst
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
24.07.2024
kl. 08.20
siggag@nyprent.is
Félag harmonikuunnenda í Skagafirði stendur fyrir Síðsumarsballi í Árgarði laugardaginn 17. ágúst frá kl. 21:00 - 01:00. Norðlensku molarnir leika fyrir dansi. Aðgangseyrir er 4000 kr. og allir eru velkomnir. Því miður þá er ekki posi en hægt að greiða með pening eða millifærslu á staðnum.
Fleiri fréttir
-
Veiðileyfin í Blöndu lækka verulega
Félagið Fish Partner, nýr rekstraraðili Blöndu og Svartár, ætlar að lækka verð á veiðileyfum í Blöndu verulega. Sporðaköst, veiðivefur mbl.is, greinir frá þessu en laxveiði í Blöndu hefur verið dræm síðustu ár og þá sérstaklega í sumar og í fyrra. Veiðifélag Blöndu og Svartár samdi nýlega við Fish Partner um að taka að sér umboðssölu á veiðileyfum fyrir félagið.Meira -
Öruggur sigur á Hafnfirðingum í gærkvöldi
Tindastóll tók á móti Haukum í gærkvöldi í Bónus deild karla. Hafnfirðingar höfðu farið illa af stað í deildinni og tapað fyrstu tveimur leikjunum sannfærandi á meðan Stólarnir leifðu sér að tapa gegn KR heima í fyrstu umferð en lögðu ÍR að velli í annarri umferð. Haukarnir reyndust lítil fyrirstaða í gær og þó gestirnir hafi hangið inni í leiknum langt fram í þriðja leikhluta var leikurinn aldrei spennandi og heimamenn fögnuðu góðum tveimur stigum. Lokatölur 106-78.Meira -
Bjarni Jónsson segir skilið við VG
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 17.10.2024 kl. 15.43 oli@feykir.isÍ yfirlýsingu á Facebook hefur Bjarni Jónsson, oddviti Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi, lýst því yfir að hann hafi ákveðið að segja sig úr VG og segja skilið við þingflokkinn. „Flestum hefur lengi verið ljóst að flokkurinn hefur sveigt af leið og brugðist grunngildum sínum og væntingum þeirra sem stóðu að stofnun hans. Hann hefur brugðist mörgu því fólki sem hefur stutt hann,“ segir Bjarni í yfirlýsingunni.Meira -
Framboð og eftirspurn – sex vikur til kosninga
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 17.10.2024 kl. 14.03 oli@feykir.isNú eru rétt um sex vikur þar til landsmönnum gefst kostur á kjósa til Alþingis á ný í kjölfar þess að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra taldi að lengra yrði ekki komist í samstarfi Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna. Forseti Íslands féllst á lausnarbeiðni hans í vikunni og hefur verið ákveðið að Alþingiskosningar verði 30. nóvember. Flokkarnir eru því komnir á fullt í að setja saman lista og gera sig klára í baráttuna um Ísland.Meira -
Kálfshamarsvík númer eitt á forgangslista Húnabyggðar
Húnahornið segir frá því að Kálfshamarsvík sé efst á forgangslista sveitarstjórnar Húnabyggðar vegna styrkumsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða fyrir árið 2025 en umsóknarfrestur rann út í gær. „Þrístapar eru númer tvö á forgangslistanum á eftir Kálfshamarsvík og þar á eftir er göngubrú yfir ós Blöndu, gamli bærinn á Blönduósi og Klifamýri og að lokum náttúruperlan Hrútey,“ segir í fréttinni.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.