Nýtt trampólín á leikskólalóðinni

Mynd tekin af Facebook-síðu Skagastrandar
Mynd tekin af Facebook-síðu Skagastrandar
Krakkarnir á Leikskólanum Barnabóli á Skagaströnd verða örugglega mjög kátir með viðbótina á leikskólalóðinni en nýtt trampólín var staðsett þar í vikunni. Þá segir á Facebook-síðu Skagastrandar að Villi með hjálp frá Ingvari og Sibba hafi komið fyrir trampólíni á leikskólalóðinni ásamt því að snyrta svæðið fyrir framan girðinguna. Flokkur vinnuskólans kom svo og gerði fínt eftir gröfukallana.
 
Það er ekki annað að sjá á meðfylgjandi myndum að þetta sé allt til fyrirmyndar hjá þeim og verður gaman að heyra hvað krökkunum finnst um nýja trampólínið þegar þau mæta næst á leikskólann.
 
 
 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir