Ertu með hugmynd? Auglýst eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð

Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um styrki í þrjá flokka vegna ársins 2023: Atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrki, verkefnastyrki á menningarsviði og stofn- og rekstrarstyrki á menningarsviði. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 þriðjudaginn 1. nóv. nk.

Á heimasíðu SSNV má finna úthlutunarreglur, matsblað og ýmsar leiðbeiningar  við gerð umsókna og segir í tilkynningu samtakanna að góð umsókn auki möguleika umsækjenda á að fá styrk úr sjóðum svo mikilvægt er að vanda vel til verka en starfsmenn SSNV eru ætíð reiðubúnir til aðstoðar.

Rafrænn kynningarfundur verður haldinn á zoom mánudaginn 10. október kl. 12:00 en nánari upplýsingar um hann má finna á facebook síðu samtakanna.

Starfsmenn SSNV verða með vinnustofur/viðtalstíma þar sem boðið verður upp á einstaklingsaðstoð við gerð umsókna, veittar upplýsingar um styrkmöguleika, auk almennrar aðstoðar í tengslum við atvinnu- og menningarstarfsemi.

Vinnustofur/viðtalstímar verða sem hér segir:
Mánudagur 17. okt
Kl. 13-16 skrifstofa SSNV, Hvammstanga

Miðvikudagur 19. okt
Kl. 10-12 Hótel Varmahlíð
Kl. 10-12 Vesturfarasetrið. Hofsósi
Kl. 13-16 Skrifstofa SSNV, Sauðárkróki

Fimmtudagur 20. okt
Kl. 10-12 skrifstofa SSNV, Skagaströnd
Kl. 13-16 Kvennaskólinn, Blönduósi

Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig á vinnustofur en fram kemur í frétt SSNV að ef svo kynni að vera að tímasetning vinnustofanna henti ekki er einnig hægt að bóka tíma með ráðgjafa á öðrum tíma til að fá aðstoð en upplýsingar um þessi atriði er hægt aðnálgast á heimasíðu SSNV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir