Birgir í ársleyfi meðan hann stýrir Fangelsismálastofnun
Lögreglustjórinn á Norðurland vestra, Birgir Jónasson, mun taka við sem forstöðumaður Fangelsismálastofnunar í byrjun næsta mánaðar í fjarveru Páls E. Winkel fangelsismálastjóra. Samkvæmt upplýsingum Feykis fer Birgir í leyfi frá störfum í tólf mánuði, líkt og Páll, en Sigurður Hólmar Kristjánsson mun gegna stöðu lögreglustjóra á Norðurlandi vestra meðan á þessum hrókeringum stendur.
Birgir, sem hefur sett mark sitt á embætti lögreglustjóra LNV meðal annars með breyttum áherslum í afbrotavörnum og þjónustu við borgarana, segir í frétt í Morgunblaðinu það verða sín fyrstu verk á nýjum vinnustað að kynnast því ágæta fólki sem hann mun starfa með og kynna sér starfsemina.
Hann segir talsverðan mun vera á því að stjórna stofnun þar sem 25 manns starfa yfir í vinnustað þar sem vinna á annað hundrað manns. „Það er mikill stærðarmunur á þessum stofnunum og þetta er ákveðið tækifæri fyrir mig og ég er ánægður með að mér skuli vera sýnt þetta traust,“ segir Birgir.
Birgir lauk meistaraprófi í lögfræði árið 2010 og MBA gráðu árið 2017. Þá lauk hann prófi frá Lögregluskóla ríkisins árið 2000 og hefur auk þess sótt sér ýmiss konar viðbótarmenntun. Hann var skipaður lögreglustjóri á Norðurlandi vestra sumarið 2021.
Sigurður Hólmar Kristjánsson, sem leysir Birgi af, er aðstoðarsaksóknari LNV og staðgengill lögreglustjóra, ættaður frá Breiðabólstað og búsettur á Hofsósi. Hann hefur starfað hjá embættinu sem aðstoðarsaksoknari fra árinu 2015 en hann lauk meistaraprófi í lögfræði frá HA 2014.
Nánar má lesa um þetta á mbl.is >
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.