Allir vegir á Víðidalstunguheiði loks opnir

Frá Víðidalstunguheiði. MYND AF VEF HÚNAÞINGS VESTRA
Frá Víðidalstunguheiði. MYND AF VEF HÚNAÞINGS VESTRA

Sagt er frá því á vef Húnaþings vestra að nú loksins eru allir vegir á Víðidalstunguheiði opnir fyrir umferð en í sumar hafa þeir verið óvenju blautir og því lengur ófærir.

Þó búið sé að opna allar leiðir eru einstaka kaflar leiðinlega mjúkir enn og vegfarendum bent á að fara að öllu með gát.

Sveitarfélagið á og rekur fimm gangnamannaskála á Víðidalstunguheiði sem eru leigðir út til gistingar og sér Júlíus Guðni Antonsson um bókanir og þjónustu við þá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir