Vinnslutillögur fyrir breytingar á aðalskipulagi, Litla-Gröf 2 og Deplar, í Skagafirði

Á vef Skagafjarðar og í Sjónhorni vikunnar er auglýsing frá Byggðarráði Skagafjarðar. Byggðaráðið starfar í umboði sveitarstjórnar Skagafjarðar en það samþykkti á 104. fundi sínum þann 3. júlí 2024 að auglýsa eftirtaldar vinnslutillögur fyrir breytingar á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020- 2035 í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vinnslutillögurnar eru settar fram í greinargerðum dags. júní 2024, unnar af VSÓ ráðgjöf.

 

Litla-Gröf 2 E-48 (málsnúmer 877/2024)

Sveitarfélagið Skagafjörður vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020 - 2035 sem felur í sér að bæta við nýju efnistöku- og efnislosunarsvæði E-48 í landi Litlu-Grafar 2.
Sett er fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi í vinnslu til kynningar sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Landeigendur Litlu-Grafar 2 óska eftir breytingu á landnotkun á landi sínu og að hluta landsins verði breytt úr landbúnaðarnotkun í efnistöku- og efnislosunarsvæði.
Landeigendur telja þörf á að opna nýja námu á svæði milli Varmahlíðar og Sauðárkróks eftir að Reynistaðarnáma (E-45) sem skráð er í gildandi aðalskipulagi hefur verið lokað. Ný náma í landi Litlu-Grafar 2 myndi nýtast næstu áratugina við uppbyggingu á svæðinu.
Breytingin felur í sér nýtt efnistökusvæði E-48 í landi Litlu-Grafar 2 (L232798). Svæðið er miðju vegu á milli Varmahlíðar og Sauðárkróks. Svæðið er á landbúnaðarsvæði L1 í gildandi aðalskipulagi, flokki II, gott ræktunarland, ekkert ræktað land er innan efnistökusvæðisins eins og það er afmarkað en svæðið hefur ekki verið nýtt í landbúnaði nema ef til vill til beitar í fyrri tíð. Svæðið er aflíðandi hæð að mestu leyti mólendi og grasmói sem þekja malarhjalla. Vestan megin við hæðina liggur Sæmundará. Aðkoma að efnistökusvæðinu verður um Sauðárkróksbraut (75) um núverandi vegtengingu í landi Litlu-Grafar og liggur vegurinn um það bil 2 km leið upp ásinn í landspildu Litlu-Grafar, Litlu-Grafar 3 og Litlu-Grafar 2 við landamörk Stóru-Grafar Syðri. Vegtenging milli efnistökusvæða A og B verður um veg sem þverar Sauðárkrókslínu 1 og 2. Haft verður samráð við Landsnet við hönnun og framkvæmdir í námunda við raflínur Landsnets.
Við hönnun vegtengingar verður haft samráð við Vegagerðina varðandi vegsýn og bestu staðsetningu vegtengingar við Sauðárkróksbraut (75).
Áætlað er að vinna allt að 250.000 m3 efni úr námunni og að vinnslutími verði út gildistíma gildandi aðalskipulags. Samhliða endurskoðun gildandi aðalskipulags verður vinnslutími efnistökusvæðisins endurskoðaður. 

Vinnslutillaga - Litla-Gröf 2

Deplar í Fljótum VÞ-2 og FV-1 (málsnúmer 878/2024)

Skagafjörður vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020 - 2035 sem felur í sér breytingar á verslunar- og þjónustusvæði á Deplum (L146791) í Fljótum og skráningu á lendingarstað í landi Depla (L146792).
Hér er sett fram vinnslutillaga að breytingu á aðalskipulagi til kynningar sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Eigendur og rekstraraðilar á Deplum í Fljótum hafa óskað eftir breytingu á aðalskipulagi í samræmi við uppbyggingaráform á Deplum. Öflug ferðaþjónusta er rekin á Deplum þar sem reistur hefur verið veiði- og gistiskáli. Áform er að stækka svæðið undir verslun og þjónustu og auka þar byggingarheimildir.
Á áreyrum við Stífluá neðan við veiði- og gistiskálann hefur verið afmarkaður lendingarstaður sem notaður er í tengslum við ferðaþjónustu á Deplum. Óskað er eftir að lendingarstaðurinn verður merktur inn á aðalskipulag Skagafjarðar.
Tillaga er að breyta afmörkun á verslun og þjónustu (VÞ-2), sem merkt er inn á sveitarfélagsuppdrátt sem punktur en verður breytt í landnotkunarfláka, þar sem stærð flákans verður meiri en 3 ha.
Tillaga er að afmarka lendingarstað (FV-1) á áreyrum Stífluár. Yfirborð lendingarstaðarins er möl eða gras. Ekki eru fyrirhugaðar byggingar innan lendingarstaðarins. Óheimilt er að reisa mannvirki nær vötnum, ám eða sjó en 50 m.
Svæðin eru skilgreind sem landbúnaðarland í núverandi aðalskipulagi. 

Vinnslutillaga - Deplar

Vinnslutillögurnar eru auglýstar frá 10. júlí til og með 23. ágúst 2024. Hægt er að skoða vinnslutillögurnar í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi málsnúmerum. Vinnslutillögurnar munu jafnframt liggja frammi til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá kl. 10-12 og kl. 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin hér á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi vinnslutillögurnar. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is í síðasta lagi 23. ágúst 2024. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is.

Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.

Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir