VALDÍS og JóiPé með sumarsmell

Það er nokkuð um liðið síðan VALDÍS sendi frá sér lag en í dag kom út lagið Þagnir Hljóma Vel sem hún flytur ásamt JóaPé sem margir ættu að þekkja sem hluta af dúettnum JóaPé og Króla. Þeir slógu í gegn með lagið B.O.B.A. sem nálgast nú fjórar milljónir rennsla á Spottanum sem er dágott fyrir íslenskt lag. VALDÍS hefur í gegnum tíðina sent frá sér r og b skotið popp og sungið á ensku.

Nú er breyting á því lagið er á alíslensku. Í kynningu á laginu segir: „Með fjörugum takti, grípandi viðlagi og upplífgandi texta fangar lagið fegurð langra sólbjartra daga og sumarást. Lagið sameinar tónlistarstíla þeirra og útkoman er lag sem er bæði skemmtilegt og grípandi.“

Hér er hlekkur á Spottann >

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir