Undirritun landsáætlunar um útrýmingu á sauðfjárriðu

F.v. Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri Matvæalstofnunar, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra, Trausti Hjálmarsson formaður bændasamtakanna og Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir. Mynd tekin af stjornarradid.is
F.v. Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri Matvæalstofnunar, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra, Trausti Hjálmarsson formaður bændasamtakanna og Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir. Mynd tekin af stjornarradid.is

Á heimasíðu Stjórnarráðsins segir að Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra, Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofnunar og Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands, hafi undirritað landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu. 

Áætlunin er unnin í sameiningu af stofnununum þremur, Matvælaráðuneytinu, Matvælastonfun og Bændasamtökum Íslands, og markar tímamót í þeirri baráttu sem átt hefur sér stað undanfarin 50 ár en talið er að sauðfjárriða hafi borist til Íslands árið 1878. Drög að áætluninni voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í maí sl. og bárust alls 17 umsagnir frá hagaðilum. Áætlunin gerir ráð fyrir breyttri nálgun við útrýmingu riðuveiki frá því sem verið hefur, horft er frá því að reyna að útrýma riðusmitefninu sjálfu en megináhersla lögð á að útrýma veikinni með ræktun fjárstofns sem ber verndandi arfgerðir gegn smitefninu ásamt áframhaldandi aðgerðum til að hefta mögnun og dreifingu þess.

„Með þessum aðgerðum munum við treysta heilbrigði sauðfjár. Heilbrigði dýra er lykilþáttur í velferð þeirra, og við höfum af því allan hag að bæta umgengni okkar við dýrin sem við höldum til manneldis” sagði matvælaráðherra. „Þessi áætlun er því mikilvægt framfaraskref fyrir íslenskan landbúnað“.

Hér er hægt að lesa áætlunina sem var undirrituð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir