Tré ársins 2024 í Varmahlíð Skagafirði
Í tilefni útnefningar Tré ársins 2024 verður viðburður í Varmahlíð í Skagafirði sunnudaginn nk. 8. september kl. 16:00.
Athöfnin fer fram í skógarlundi í Varmahlíð sunnan við Mánaþúfu. Lundurinn er í eigu Skógræktarfélags Skagfirðinga. Er þetta í fyrsta skipti sem Tré ársins er valið í Skagafirði og því um stórviðburð að ræða.
Tónlist verður leikin af fingrum fram, ávörp og kaffiveitingar í boði Skógræktarfélags Íslands á Hótel Varmahlíð. Allir velkomnir
Til gamans má geta að Tré ársins 2023 var sitkagreni (Picea sitchensis) á Seyðisfirði, ofan við Hafnargötu 32. Á vef Skógræktarfélags Íslands segir að hjónin Haraldur Aðalsteinsson og Sigurbjörg Björnsdóttir gróðursettu tréð árið 1975, en þau bjuggu í húsinu Sandfelli, sem nú er horfið. Það var Helgi Hallgrímsson náttúrufræðingur sem stakk upp á því að þetta tré yrði útnefnt. Þótti það viðeigandi af því að þetta tré stóð af sér stóru skriðuna árið 2020, er tók með sér hús í kring og töluvert af yngri trjám á svæðinu og stendur því nú stakt. Hefur tréð því töluvert tilfinningalegt gildi fyrir íbúa Seyðisfjarðar og er ákveðinn minnisvarði um þann viðburð.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.