Jón Adolf Guðjónsson sæmdur gullmerki KS

Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri KS afhendir Jóni Adolf Guðjónssyni gullmerki KS.    MYND AÐSEND
Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri KS afhendir Jóni Adolf Guðjónssyni gullmerki KS. MYND AÐSEND

Stjórn Kaupfélags Skagfirðinga svf. ákvað að sæma Jón Adolf Guðjónsson fyrrverandi bankastjóra Búnaðarbanka Íslands „gullmerki“ Kaupfélags Skagfirðinga svf. fyrir öflugan stuðning við uppbyggingu atvinnulífs í Skagafirði.

Jón Adolf Guðjónsson starfaði sem aðalbankastjóri við Búnaðarbanka Íslands um árabil og var á þeim tím-um svæðisstjóri gagnvart Skagafirði. Aðkoma hans að málum skipti miklu fyrir framþróun atvinnulífs í Skagafirði undir lok síðustu aldar og við upphaf þeirra tuttugustu og fyrstu. Fyrir það vilja Skagfirðingar þakka.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir