Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2024 í Húnaþingi vestra

Rjúpan. Mynd:vísindavefurinn.
Rjúpan. Mynd:vísindavefurinn.

Umhverfisstofnun sendi miðjan júlí inn veiðistjórnunartillögur fyrir rjúpu árið 2024 til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Samkvæmt þeim skulu veiðidagar vera heilir og veiði hefjast fyrsta föstudag á eða eftir 20. október. Veiði er heimil frá og með föstudegi til og með þriðjudags innan tímabilsins. Því er óleyfilegt að veiða rjúpu miðvikudaga og fimmtudaga. Í nýja veiðistjórnunarkerfinu er landinu skipt upp í svæðin sex sem talin eru upp á meðfylgjandi mynd hér í fréttinni og er veiðitímabil hvers svæðis ekki háð öðrum svæðum heldur stjórnast af ástandi stofnsins innan svæðisins segir á vef Umhverfisstofnunar. Á Norðurlandi vestra eru 20 veiðidagar og má veiða frá 25. október til og með 19. nóvember. Þá er veiðimenn minntir á að ennþá er sölubann á rjúpu. 

Á heimasíðu sveitarfélags Húnaþings vestra, hunathing.is, segir að fyrirkomulag rjúpnaveiða í eignarlöndum Húnaþings vestra verður með eftirfarandi hætti haustið 2024:

Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af Veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða í eignarlöndum sveitarfélagsins.

Rjúpnaveiðisvæði í landi Húnaþings vestra má sjá HÉR:

Svæði 1 - Vesturhluti Víðidalstunguheiðar, lönd Stóra Hvarfs, Stóru Hlíðar og Öxnartungu. Sjá kort HÉR.

Svæði 2 - Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru: Núpsheiði, Aðalbólsheiði, Lækjarbæjar, Fosskot og Þverá. Sjá kort HÉR

Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á ákveðna daga á veiðitíma rjúpu sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2024 og veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.

Veiðileyfin verða til sölu hjá Hallfríði Ólafsdóttur í Víðidalstungu og skulu pöntuð með tölvupósti á netfangið hallfridur78@gmail.com. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 11.000 á dag.

Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði 1 er takmarkaður við 4 byssur á dag en 5 byssur á svæði 2 og tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði. Veiðileyfi eru ekki endurgreidd.

Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum eins og rjúpnaveiði.

Sveitarstjóri

Rjúpnaveiði í Víðidal

Rjúpnaveiði í löndum Syðra-Kolugils, Hrappsstaða, Gafls og Lækjarkots í Víðidal (svæði 3) verður eins og undanfarin haust takmörkuð.

  • Frá 25. október – 5. nóvember eru seld leyfi í eignarlandi Húnaþings vestra í Gafli sunnan Gaflsgjár og Lækjarkots, 4 byssur á dag.
  • Frá 8. – 19. nóvember eru seld leyfi í löndum Syðra-Kolugils og Hrappsstaða þrjár byssur á dag sem og Gafls og Lækjarkots fjórar byssur á dag alls 7 byssur á dag. Sjá kort hér HÉR

Veiðileyfin verða til sölu hjá Hallfríði Ólafsdóttur í Víðidalstungu og skulu pöntuð með tölvupósti á netfangið hallfridur78@gmail.com. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 11.000 á dag.

Landeigendur

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir