Einokun að eilífu, amen | Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Álfhildur Leifsdóttir. MYND: GG
Álfhildur Leifsdóttir. MYND: GG

Fákeppni á markaði hækkar verð á nauðsynjum og eykur stéttaskiptingu. Það er óhjákvæmilegt og þetta vitum við. Ég er ekki að mæla óheftum markaðslausnum bót, en heilbrigð samkeppni á smásölumarkaði er grundvallarþáttur í bættum lífskjörum landsbyggðarfólks, þar sem fákeppni og einokun ráða víða ríkjum. Samfélög sem glíma við þau vandamál fyrir skorti á vöruúrvali, samdrætti í þjónustu og hærra vöruverði sem hefur bein áhrif á lífsgæði.

Víða hafa neytendur landsbyggðarinnar ekkert raunverulegt val. Það leiðir oft til þess að fólk neyðist til að sækja vörur í nærliggjandi sveitarfélög og þannig flæða peningarnir úr heimabyggð. Þá fer af stað keðjuverkun sem skaðar atvinnulíf, verslun og vöxt samfélagsins í heild. Heilt yfir einkennist íslenskur neytendamarkaður af samþjöppun þar sem fá fyrirtæki ráða mestu um verðlag og vöruúrval. Þetta skapar aðstæður sem eru óhagstæðar fyrir neytendur, ekki aðeins á landsbyggðinni heldur um allt land. Samþjöppunin hefur einnig þau áhrif að okrað er á minni söluaðilum, kaupmanninum á horninu á meðan verslunarkeðjur sem reka tugi verslanna á landsbyggðinni njóta bestu kjara í nafni krafta sinna og stærðar, sem þó virðist ekki skila sér í sanngjörnu vöruverði. Þetta er þekkt vandamál, ekki síst í mínu annars góða kjördæmi, Norðvestur.

En hvað er hægt að gera?

Ein leið til að koma í veg fyrir einokun úti á landi eru lágvöruverðsverslanir. Þær byggja á minni framlegð, lægra verði og minnka kröfuna um að ferðast langan veg til að sækja sér salt í grautinn. Þetta skiptir miklu máli fyrir samfélög sem hafa þurft að þola háan ferðakostnað og tímaeyðslu við að sækja nauðsynjar í næsta hrepp.

Þrátt fyrir að markaðsöflin hafi sín áhrif á jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar, þá bera sveitarfélög og ríkisvaldið ábyrgð á því að greiða leið fyrir betri samkeppni.

Á sveitarstjórnarfundi Skagafjarðar í vikunni, 23. október, var tekin fyrir tillaga sem undirrituð lagði fram í nafni VG og óháðra. Tillagan miðar að því að bregðast við háu vöruverði og fákeppni í verslun í Skagafirði, og skapa þannig aðstæður fyrir fjölbreytt úrval og lægra matvöruverð fyrir íbúa Skagafjarðar og nágrennis. Tillagan var felld og með henni gullið tækifæri til að bæta lífskjör Skagfirðinga og gera svæðið að eftirsóknarverðari búsetukosti.

Leiðin fram á við

Það er þó ljóst að vandamálið er mun víðtækara en mín heimabyggð og á sér ólíkar birtingamyndum um allt land. Sveitarfélög á landsbyggðinni mættu að taka þetta óspart upp, ekki síst til þess að brýna fyrir söluaðilum í sínu nágrenni að láta af okrinu og mismuna ekki neytendum eftir búsetu. Með því að nýta skipulagsvald sitt og gera ívilnanir að raunhæfum valkosti, geta sveitarfélögin laðað að ný fyrirtæki sem geta brotið upp fákeppnina. Með einskiptis aðgerðum eins og afslætti á gatnagerðagjöldum má nýta þau verkfæri sem er að finna í lögum til að stýra uppbyggingu, efla samkeppni, bæta þjónustu og hag fjölskyldna út um land allt.

Þegar við horfum fram á við, er ljóst að baráttan gegn fákeppni snýst ekki aðeins um lægra vöruverð. Hún snýst um réttindi neytenda, sanngirni í viðskiptum og jafnt aðgengi að grunnþjónustu. Aðgerðir gegn fákeppni þurfa að byggja á fjölþættri nálgun þar sem áhersla er lögð á vernd neytenda og hvata fyrir fyrirtæki til að taka þátt í sjálfbærari viðskiptaháttum, hvar sem þau eru í sveit sett.

Álfhildur Leifsdóttir
oddviti VG í Norðvesturkjördæmi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir