Dregið var í VÍS bikarnum í dag

Dregið var í 32 liða úrslit VÍS bikars karla í Laugardalnum í hádeginu í dag og fá Stólarnir að rúlla upp á Akranes þar sem þeir spila við 1. deildarlið ÍA. Leikið verður dagana 20.-21. október en VÍS bikarúrslitin, ef við náum svo langt, verða leikin dagana 18.-23. mars 2025 í Smáranum, þar sem konurnar leika undanúrslit þann 18. mars, karlarnir 19. mars og úrslitaleikirnir sjálfir verða 22. mars. Þá verður dregið í 16 liða úrslit kl. 12:15 miðvikudaginn 23. október á 3. hæð íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal.
 
Hér fyrir neðan má sjá viðureignirnar í 32 liða úrslitunum
 
VÍS BIKAR KARLA:
Alls voru 25 lið skráð til leiks og því var dregið í níu viðureignir. 
🏀Hamar - Keflavík
🏀Þór Ak. - Álftanes
🏀ÍA - Tindastóll
🏀Selfoss - Fjölnir
🏀Laugdælir - Breiðablik
🏀ÍR - Valur
🏀Ármann - Njarðvík
🏀Skallagrímur - Snæfell
🏀KR b - Grindavík
 
Haukar, Sindri, Þór Þ., Höttur, Stjarnan, KR og KV sitja hjá og eru komin áfram í 16 liða úrslit.
 
VÍS BIKAR KVENNA.
Alls eru 16 lið skráð til leiks og verður því ekki leikið í 32 liða úrslitum.
Aþena, Ármann, Fjölnir, Grindavík, Hamar/Þór, Haukar, ÍR, Keflavík, KR, Njarðvík ,Selfoss, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll, Valur og Þór Ak. verða í pottinum þegar dregið verður í 16 liða úrslit.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir