„Viðtökurnar alveg ótrúlegar og þessi verðlaun algjör kóróna“

Helgi Sæmundur Guðmundsson og Arnar Freyr Frostason í hljómsveitinni Úlfur Úlfur fengu verðlaun fyrir bestu plötuna á Hlustendaverðlaununum. Ljósm./fengin af fb-síðu Helga Sæmundar.
Helgi Sæmundur Guðmundsson og Arnar Freyr Frostason í hljómsveitinni Úlfur Úlfur fengu verðlaun fyrir bestu plötuna á Hlustendaverðlaununum. Ljósm./fengin af fb-síðu Helga Sæmundar.

Hlustendaverðlaunin 2016 fóru fram í Háskólabíói sl. föstudagskvöld. Þar fóru skagfirsku drengirnir, Helgi Sæmundur Guðmundsson og Arnar Freyr Frostason, í hljómsveitinni Úlfur Úlfur  heim með verðlaun fyrir bestu plötu ársins, Tvær plánetur, en platan kom út í byrjun síðasta sumars. Félagarnir eru að vonum hæstánægðir með þær góðu viðtökur sem platan hefur fengið.  

„Þetta ferli tók miklu lengri tíma en við höfðum áætlað og við tókum mörg tímabil þar sem við sáum fram á að þetta myndi aldrei hafast. Á síðustu metrunum vorum við svo farnir að efast stórlega um að það væri eitthvað varið í gripinn en ákváðum þó eftir að hafa leyft fólki að heyra að gefa hana út. Svo voru viðtökurnar alveg ótrúlegar og þessi verðlaun algjör kóróna,“ sagði Helgi Sæmundur í samtali við Feyki. 

Hlustendaverðlaunin eru stærsti viðburður sem útvarpssvið 365 miðla stendur fyrir á hverju ár. Hér að neðan má sjá niðurstöður kvöldsins og þá sigurvegara sem fóru heim með verðlaun:

Erlenda lag ársins
Hello – Adele 

Plata ársins
Tvær plánetur - Úlfur Úlfur                           

Nýliði ársins
Glowie

Söngvari ársins
Páll Óskar Hjálmtýsson                              

Flytjandi ársins
Dimma                                       

Lag ársins
Clystals – Of Monsters and Men                  

Söngkona ársins
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir – Of Monsters and Men        

Myndband ársins
See Hell - Agent Fresco

Freyr Árnason
Gísli Þór Brynjólfsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir