Upplestri á aðventu frestað til sunnudags

Upplestri á aðventu í Heimilisiðnaðarsafninu hefur verið frestað til sunnudag. Mynd: KSE.
Upplestri á aðventu í Heimilisiðnaðarsafninu hefur verið frestað til sunnudag. Mynd: KSE.

Vegna slæmrar veðurspár verður áður auglýstum Upplestri á aðventu, sem vera átti í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi á morgun kl. 15:00, frestað til sunnudags. Hefst hann í staðin á sunnudaginn, 6. dsember, klukkan 14:00. Boðið er upp á heitt súkkulaði og smákökur.

Bjarni Guðmundsson les úr og kynnir bók sína Íslenska sláttuhætti, Stefanía A. Garðarsdóttir les úr bókinni Dagar handan við dægrin eftir Sölva Sveinsson, Sigrún Ásta Haraldsdóttir les úr og kynnir ljóðabók sína Hvíta veggi og Páll Þórðarson les úr bókinni Hersetan á Ströndum og Norðurlandi vestra, eftir Friðþór Eydal.

Eftir upplesturinn verður hægt að kaupa og fá áritaðar bækur þeirra höfunda sem eru viðstaddir. "Minnum á „litlu safnbúðina“ þar sem fá má sitthvað til jólagjafa s.s. hinar sívinsælu laufabrauðs vörur. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis," segir í tilkynningu frá Heimilisiðnaðarsafninu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir